Tekjustofnar sveitarfélaga
Miðvikudaginn 17. maí 1989

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Herra forseti. Óvænt varð þetta æðiskemmtileg umræða og uppbyggileg þegar hæstv. sjútvrh. kom í pontuna og lýsti því m.a. yfir að allir skattar væru í eðli sínu þannig að þeir lentu út í vöruverðinu um síðir og að lokum á alþýðu manna. Þetta er alveg laukrétt hjá hæstv. ráðherra. Og hann lýsti því að hann hefur haft starfa af því að sjá um framtöl fyrirtækja og þar komist að raun um hverjir það voru sem að lokum greiddu skattana. Það var alþýða landsins.
    Nú get ég verið sammála honum um að aðstöðugjald geti verið jafnhæpið og margir skattar aðrir. Nánast á hverjum degi erum við að afgreiða einhver skattahækkunarlög. Að vísu erum við stjórnarandstæðingar yfirleitt á móti þeim, en þau eru að renna hér í gegn eitt af öðru. T.d. ætlar ríkið á eftir, að mér skilst, að skattleggja sjálft sig um nokkra tugi milljarða, þ.e. að taka tvöfalt gjald fyrir ríkisábyrgðir ríkistryggðra banka, þ.e. Landsbankans og Búnaðarbankans. Það á að færa nokkra milljónatugi beint úr bönkum þessum, af því að þeir eru svo aflögufærir og eiga svo létt með að lækka vextina eins og allir vita, og yfir í kassa hæstv. fjmrh. Sá skattur er enn þá vitlausari en aðstöðugjald.
    Ég hef heyrt svolítið um skattalög líka í öðrum löndum. Menn eru ekki á því að svokallaður ,,business tax`` eða veltuskattur sé endilega sá versti. Ef fyrirtækin græða borga fyrirtækin þann skatt. Fyrirtæki á Íslandi eru hins vegar með þeirri náttúru og þeim eru búin slík starfsskilyrði að þau græða yfirleitt ekki og velta þess vegna öllum sköttum beint út í verðlagið og á bök alþýðunnar. Það var alveg laukrétt athugasemd hjá hæstv. ráðherra.
    Nú situr síst á mér að ætla að tefja þessa umræðu með því að nægar eru annirnar, en ég komst ekki hjá að vekja athygli á þessari yfirlýsingu hæstv. ráðherra vegna þess að hún verðskuldar að menn fari nú loksins að hugsa um það að skattahækkanir eins og við höfum upplifað síðustu ár og áratugi jafnvel, stanslausar skattahækkanir, keyra auðvitað áfram verðlag. Þær rýra kjör alþýðu, þær keyra upp verðbólguna og þær auka halla ríkisins. Við sáum í fyrra gatið sem átti að fylla upp í með 3 milljörðum í sköttum eins og það var kallað, en það átti að hafa borð fyrir báru og þess vegna voru skattarnir hækkaðir um 5 milljarða til þess að gatið mundi nú örugglega lokast og jafnvel velta út úr kassanum eitthvað af peningum. Það urðu 7,2 milljarðar þegar upp var staðið. Nú er verið að dengja á sköttum dag hvern, nýjum og nýjum sköttum, fyrst og fremst í ríkissjóð en ekki til sveitarfélaganna. Aðstöðugjaldið fer þó til sveitarfélaganna og sveitarstjórnir eru í návígi við borgarana og reyna kannski þess vegna að stilla sköttum í hóf því að þær vilja gjarnan, sumar hverjar, láta kjósa sig aftur. Skattarnir eru hins vegar með því eðli að þeir keyra áfram verðbólguna. Þeir velta ekki bara beint upp á bök alþýðunnar eins og ráðherrann sagði. Þeir keyra áfram verðbólguna og þeir auka hallann á ríkissjóði. Það er staðreynd málsins. Þeir

hafa gert það vegna þess að það eru nefnilega tveir dálkar í fjárlögunum. Það gleymist alltaf þegar verið er að loka gatinu að það er líka til gjaldahlið. Yfirlýsingin sem gefin var af fyrrverandi hæstv. fjmrh. þegar leið á sl. ár var sú að hallinn yrði mikill vegna þess að tekjurnar hækkuðu minna en gert var ráð fyrir en gjöldin miklu meira. Síðan er bara reiknað og reiknað og útkoman 7,2 milljarðar í staðinn fyrir 5 milljarðar í afgang.
    Þessa hlið á dæminu mætti hæstv. ráðherra líka íhuga af því að hans stjórn og hans stjórnir eru núna einmitt að endurtaka þennan leik. Auðvitað verður fólkið að velta þessum byrðum af sér. Og ríkisgjöldin eru nánast bara tvennt, þ.e. bein og óbein vinnulaun og gjaldeyrisnotkun. Þegar gengið er fellt annan hvern dag eða svo og launin hækka og allur kostnaður verður hærri í þjóðfélaginu er gjaldahliðin fyrst og fremst að hækka og hún hækkar fyrr og hún hækkar meira en tekjurnar. Þess vegna verður hallinn á því ári sem nú er senn hálfnað hærri en nokkurn tíma áður í sögunni. Það er ég alveg sannfærður um, líka þó að teknir séu smápinklar eins og af sjálfu sér með bankasköttunum sem núna er verið að leggja á.
    Við eigum mörg mál óafgreidd og ég lofaði að tefja ekki umræðuna, en það var svo merkilegt sem hæstv. ráðherra lagði inn í hana að það var ómögulegt annað en vekja rækilega athygli á skarpskyggni ráðherrans. Nú kemur sveitarstjórnarmaðurinn upp í hv. þm. Stefáni Guðmundssyni sem er annt um að hafa lága skatta. Ég held að það sé alveg óhætt að lofa honum að hafa einhverja heimild til að ná í einhverja skatta til sveitarfélaga. Ég veit að hann fer vel með það og ekki neitt nándarnærri jafnilla og hæstv. fjmrh. og ráðherrarnir gera. Ég treysti honum til þess að hafa það mjög í hófi sem lagt er á atvinnulífið. Um hitt má svo deila hvort það á að ganga jafnt yfir öll atvinnufyrirtæki. Það gerir það hvergi. Það eru mismunandi skattstigar. Aðstöðugjaldið er allt frá 0% og upp í 1,5 til 2% eða eitthvað svoleiðis. Getur farið lengra á ákveðnum vörum.