Umferðarlög
Miðvikudaginn 17. maí 1989

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingar á umferðarlögum, nr. 50/1987 sem er á þskj. 1164. Frv. er flutt af hv. allshn., en í því eru sameinuð meginefni tveggja frv. sem nefndin hefur haft til umfjöllunar. Annars vegar er frv. sem ég hef flutt ásamt fleiri hv. þm., þeim Karli Steinari Guðnasyni, Guðmundi Ágústssyni, Skúla Alexanderssyni og Guðrúnu Agnarsdóttur, og hins vegar frv. sem flutt var af hv. þm. Eiði Guðnasyni.
    Ég held að ekki sé ástæða fyrir mig að fara út í efnisatriði þessa frv. Nefndin hafði ekki hugsað sér að nauðsynlegt væri að vísa frv. til nefndar þar sem nefndin flytur frv., en eftir að það kom fram bárust henni athugasemdir frá einum starfsmanni í dómsmrn. og þykir nefndinni rétt að skoða málið aftur með tilliti til þeirra athugasemda. Þess vegna er lagt til að að lokinni þesari umræðu verði því vísað til 2. umr. og hv. allshn.