Pálmi Jónsson:
    Herra forseti. Hér fer fram mjög þýðingarmikil umræða um það mál sem hér er á dagskrá og það er sem stundum hefur gerst áður að ráðherra sá sem er í forsvari fyrir þessu máli er ekki viðstaddur í þingsalnum. Ég tel það óviðunandi, herra forseti, að halda þessari umræðu áfram án þess að hæstv. ráðherra sé við og beini því til hæstv. forseta að umræðunni sé frestað þegar í stað.