Jarðræktarlög
Miðvikudaginn 17. maí 1989

     Frsm. landbn. (Alexander Stefánsson):
    Herra forseti. Landbn. hefur haft með að gera frv. til l. um breytingar á jarðræktarlögum nr. 46 30. mars 1987. Nefndin sendi samhljóða frá sér svohljóðandi nefndarálit:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. á fundum sínum. Nefndin mætti, ásamt landbn. Ed., á aukafund búnaðarþings og fylgdist með umræðum. Þá komu jarðræktar- og búfjárræktarnefndir búnaðarþings á sameiginlegan fund landbúnaðarnefnda þingsins til viðræðna um frv.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt eins og Ed. afgreiddi það.``
    Undir þetta skrifa allir nefndarmenn í landbn. Nd.