Stefán Valgeirsson:
    Herra forseti. Í Dagblaðinu sl. laugardag stóð með stríðsfyrirsögn ,,Hörð gagnrýni Ríkisendurskoðunar á störf Jóns Helgasonar. --- Einn milljarður án lagaheimilda``. Og undirfyrirsögn ,,Forsetar þingsins ákveða viðbrögð Alþingis eftir þingslit``.
    Ástæðan fyrir þessari frétt er sú að lögð var fyrir Alþingi skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd búvörulaga, nr. 46/1985, tímasett í apríl sl. Henni fylgir hefti með fylgiskjölum. Helstu niðurstöður skýrslunnar, sem koma fram á bls. 2 og 3, eru m.a. þær að Ríkisendurskoðun telur að reglugerð nr. 445 frá 1986 hafi verið breytt með reglugerðarbreytingum nr. 157/1987 og nr. 443/1987 án þess að breytingarnar hafi átt sér stoð í lögum. Einnig að Ríkisendurskoðun álítur að ríkisvaldið sé ekki bundið af greiðsluskyldum í formi verðábyrgðar vegna fullvirðisréttar sem úthlutað hefur verið á fyrrgreindan hátt. Einnig að Ríkisendurskoðun telur að gera þurfi verulegt átak í því að aðlaga sauðfjárframleiðsluna í landinu að þörfum innanlandsneyslu eins og markmið laganna um búvöruframleiðslu gera ráð fyrir. Þá koma einnig fram áhersluatriði Ríkisendurskoðunar um ráðstöfun tekna Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og að ekki megi nota Framleiðnisjóð ,,til tímabundinna aðgerða til aðstoðar rekstrarvanda hefðbundinna búgreina til loðdýraræktar`` eins og þar stendur. Þessar athugasemdir um framkvæmd búvörulaga gefa til kynna það álit Ríkisendurskoðunar að þeir sem fóru með yfirstjórn þessara mála fyrir hönd ríkisins hafi brotið mjög gróflega af sér. Það er því óhjákvæmilegt að Alþingi fjalli um framkvæmd búvörulaganna, nr. 46/1985, og vil ég hér með skora á forseta Alþingis að vinna að því að málið komi á dagskrá Alþingis til umræðu og aðgerða sem leiða hið rétta í ljós og það áður en þessu þingi er lokið.
    Óhjákvæmilegt er að benda á nokkur athugunarverð atriði varðandi skýrslu Ríkisendurskoðunar:
    1. Ekki er skýrt frá því í skýrslunni hver eða hverjir hafi samið skýrsluna eða hvenær.
    2. Ekki er sagt frá hverjir starfsmenn Ríkisendurskoðunar bera annars vegar faglega og hins vegar stjórnunarlega ábyrgð á skýrslunni.
    Öll þessi atriði eru mikilsverð og virðist með þessum frágangi skýrslunnar brotið gegn mikilvægum reglum í opinberri stjórnarframkvæmd, að geta ekki um höfunda eða ábyrgðarmenn. Þetta er sérstaklega athugavert vegna þess m.a. að athugasemdir Ríkisendurskoðunar eru að hluta til um lagaleg vafaatriði, en lögin um Ríkisendurskoðun virðast tæpast gera ráð fyrir að hún fjalli sérstaklega um þau. Þetta er einnig sérstaklega athugunarvert vegna þess að tilefni skýrslunnar, þ.e. bréf landbrh. frá 11. nóv. 1988, virðist ekki gefa tilefni til þeirra athugasemda sem eru meðal helstu niðurstaðna hennar.
    Loks er á það að benda að Sigurður Þórðarson vararíkisendurskoðandi er annar fulltrúi ríkisins í framkvæmdanefnd búvörusamninga svo sem fram kemur á fylgiskjali 15 í fylgiskjalamöppu með skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hér virðist geta verið um að ræða

mögulega vanhæfni núverandi ríkisendurskoðanda eða starfsmanna hans til þess að fjalla um mál sem samstarfsmenn eða yfirmenn stofnunarinnar hafa áður unnið að sjálfir. Öll þessi atriði valda þeim efasemdum um starfshætti Ríkisendurskoðunar að óhjákvæmilegt virðist vera að Alþingi geri ráðstafanir án tafar til að láta kanna hvort starfshættir Ríkisendurskoðunar séu í samræmi við lög um stofnunina og aðrar grundvallarreglur um framkvæmd opinberrar stjórnsýslu.