Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Af þessu tilefni vill forseti taka fram að hann mun að sjálfsögðu taka það erindi sérstaklega upp á forsetafundi að sú skýrsla sem hér var gerð að umtalsefni geti komið til umræðu hér í þinginu og vænti ég þess að forsetar geti fljótlega tekið afstöðu til þess.
    Í annan stað er hér vikið að viðbrögðum forseta við þessari skýrslu. Þess skal getið að forsetar hafa nokkuð rætt þessa skýrslu og þess er líka að vænta að viðbrögð að öðru leyti, ef einhver verða, verði ljós á allra næstu dögum.