Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég skal að sjálfsögðu verða við þeim tilmælum að gera aðeins örstutta athugasemd. Ég vildi taka það fram af því tilefni sem hefur komið fram í umræðunum að afstöðu mína í þessu máli má á engan hátt skilja þannig að ég vilji ekki vinsamleg samskipti við þessar þjóðir. Þau tel ég að verði að vera og ég tel að við höfum verið að byggja upp vinsamleg samskipti við þessar þjóðir og við eigum að halda því áfram og það tók ég skýrt fram í minni ræðu hér. Það er alveg út í hött að vera að blanda þessu máli með þessum hætti saman við það.
Það sem vakir fyrir mönnum í þessu er að tryggja að samkomulag náist um nýtingu sameiginlegra stofna. Hefði það verið eðlilegt meðan ekki var samið um loðnuna að það skipti engu máli þótt færeysk fiskiskip, loðnuskip, nýttu loðnustofninn norður af landinu utan okkar landhelgi og lönduðu öllum þeim afla hér á landi? Hefði það verið eðlileg framkvæmd mála? Meðan var verið að reyna að ná samningum var mjög sótt eftir því að íslensk fiskiskip gætu keypt veiðiheimildir af Grænlendingum og að norsk fiskiskip gætu keypt veiðiheimildir af Grænlendingum. Gegn þessu var staðið og ég er ekki í neinum vafa um að þetta stuðlaði að góðu samkomulagi í málinu.
Ég vil líka minna hv. þm. á að það er hér sameiginlegur karfastofn og sameiginlegur rækjustofn. Hvað selja Grænlendingar Efnahagsbandalaginu mikil réttindi úr þessum sameiginlega karfastofni? Sextíu og tvö þús. tonn á þessu ári. Hvað er veitt við Austur-Grænland úr þessum stofni af þeirri þjóð sem fyrst og fremst stundar þessar veiðar, þ.e. Þjóðverjum? Fimm þús. tonn. Það liggur alveg fyrir að það er hægt að veiða mun meira úr þessum stofni frá Íslandi. Ég tel að þarna sé allt of langt gengið í veitingu veiðiheimilda úr þessum stofni og til þess að nokkur von sé til að þar náist samkomulag verði að draga úr þessum veiðiheimildum. Um þetta þarf að semja og samhliða því þarf að semja um gagnkvæman löndunarrétt.
Þannig hefur verið haldið á þessum málum og ég veit ekki til þess að upp úr því hafi sprottið neinn óvinskapur milli Íslendinga og Grænlendinga nema það skyldi þá eingöngu vera í kollinum á þeim þingmönnum sem hér hafa haldið því fram. Þetta vildi ég taka skýrt fram því að auðvitað veit ég að það er fylgst með þessum málum og leitt til þess að vita að ekki geti ríkt um það einlæg samstaða að koma fram af fullri virðingu gagnvart Grænlendingum í þeim tilgangi að tryggja þeim allan sinn rétt. En það verður ekki undan því vikist að ná samkomulagi um heildarveiði úr þessum stofnum hver svo sem á að gera það.