Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Aðeins örstutt athugasemd, hæstv. forseti. Ég er viss um að hv. 4. þm. Austurl. hefur enga innstæðu fyrir fullyrðingu sinni um það að hlutfall orkukostnaðar í framfærslukostnaði heimilanna hafi hækkað á starfstíma þessarar stjórnar. Ég hygg að hið gagnstæða kynni að vera sanni nær. ( EgJ: Vill ekki ráðherra skýra það betur?)