Jöfnun á raforkukostnaði
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil leiðrétta hv. þm. Þorvald Garðar. Ég sagði að ég væri þó ánægður með að það væri verið að vinna í þessu. En ég held að það hafi komið greinilega fram í máli mínu að ég væri ekki ánægður með stöðuna og ég vænti þess að það fari að sjást árangur af þessu starfi. Ég sé ástæðu til þess að leiðrétta þetta.