Öryggismálanefnd sjómanna
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
    Virðulegi forseti. Hinn 30. mars 1984 skipaði Matthías Bjarnason þáv. samgrh. nefnd níu alþingismanna til að fjalla um alla þætti öryggismála skipa og áhafna þeirra, þar með talin menntun og þjálfun áhafna. Nefndinni var jafnframt falið að gera tillögur um nauðsynlegar úrbætur í öryggismálum sjómanna og tillögur um fjármögnun slíkra aðgerða. Nefndinni var ætlað að ljúka störfum eigi síðar en í árslok 1985, en talið æskilegt að áfangaskýrsla lægi fyrir eigi síðar en í október 1984. Eftirtaldir alþingismenn voru skipaðir í nefndina: Árni Johnsen, Karvel Pálmason, Ólafur Þ. Þórðarson, Svavar Gestsson, Guðrún Agnarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Stefán Guðmundsson og Valdimar Indriðason og hafði nefndin náið samstarf við Siglingamálastofnun ríkisins, rannsóknanefnd sjóslysa, Slysavarnafélag Íslands, Landhelgisgæslu Íslands og samtök sjómanna og útgerðarmanna, en auk þess komu ýmsir aðrir aðilar á fundi nefndarinnar sem voru allmargir.
    Áfangaskýrsla var afhent 31. okt. 1984 eins og til var ætlast ásamt 17 tillögum er vörðuðu brýnustu úrbætur í öryggis- og menntamálum sjómanna. Starfslok nefndarinnar töfðust þó fram í október 1986, ekki síst vegna óvenjulangs þinghalds á vorinu 1985. Þá skilaði nefndin tillögum í 19 liðum og hljóðaði lokatillagan svo, með leyfi forseta:
    ,,Óskað er eftir því að samgrh. gefi Alþingi skýrslu eftir tvö ár um framkvæmd þessara og fyrri tillagna nefndarinnar. Enn fremur skal skýrslan fjalla um stöðu öryggismála sjómanna almennt.``
    Mörgu er enn ábótavant í öryggismálum íslenskra sjómanna þó að margt hafi breyst til batnaðar og það er því fyllsta þörf á að spyrja hæstv. samgrh. eins og ég hef gert á þskj. 1145: ,,Hvenær má vænta skýrslu samgrh. til Alþingis um framkvæmd loka- og áfangatillagna öryggismálanefndar sjómanna, svo og um stöðu öryggismála sjómanna almennt?``