Ritvinnslusamningur
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson):
    Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. menntmrh. lítillar spurningar og spyr þá staðgengil hans á þessum fundi, hæstv. samgrh., þeirrar spurningar: Hafa stofnanir sem heyra undir hæstv. ráðherra gert verksamning erlendis um ritvinnslu og hefur ráðherra staðfest þennan samning?
    Ég hef sannfrétt að tvö virtustu bókasöfn landsins hafi gert slíkan ritvinnslusamning við breskan aðila sem síðan hefur fengið þriðja aðila til að vinna það verk. Kannaði menntmrh. hvort Íslendingum var gefinn kostur á að bjóða í verkið? Hér er um verksamning að ræða sem skiptir einhverjum tugum milljóna. Ég vænti þess að hæstv. ráðherra upplýsi hversu háar fjárupphæðir hér er um að ræða.
    Íslendingar hafa á síðustu árum státað mjög af hugviti sínu og ekki síður af hinu að þeir séu albúnir að takast á við ný og nýstárleg verkefni og við gerum okkur grein fyrir því að heimurinn er að breytast og tækninni hefur fleygt fram. Tölvutæknin er orðin risavaxin og möguleikarnir eru miklir sem hafa komið fram í henni um ný verkefni. Ég er t.d. með hér í höndunum grein eftir Jón Erlendsson verkfræðing og forstöðumann upplýsingaþjónustu Háskóla Íslands þar sem hann sýnir fram á hvernig hægt er að færa verkefni til og hvernig menn í mörgum þjóðlöndum eru farnir að færa verkefni til í landi sínu þannig að fólkið geti stundað störf sín kringum tölvur hvar sem það býr í löndunum. Sem betur fer hafa Íslendingar nú á síðustu árum verið að átta sig á þessari tækni og það hefur gerst bæði í mínu kjördæmi og sjálfsagt víðar að ungir menn sem hafa stundað langskólanám hafa fremur viljað setja sig niður á landsbyggðinni og eru í leit að verkefnum eins og ég hef hér minnst á. Þess vegna hefði það verk sem ég hér er að spyrja um verið kjörið til þess að hjálpa slíkum fyrirtækjum á landsbyggðinni til að koma undir sig fótunum, vera hliðarverkefni í slíku fyrirtæki.
    Ég vænti þess að ráðuneytið hugi að því ef slíkt kemur upp aftur að Íslendingar fái sama rétt og útlendingar í kringum svona verkefni, fái að gera tilboð í þau.