Útbreiðsla Stöðvar 2
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Þó að ég hafi því miður ekki verið hér í þingsal til að hlusta á fsp. og svar hæstv. ráðherra hef ég engu að síður áhuga á þessu máli. Reyndar skil ég ekki í hvaða tilgangi svona fsp. er flutt vegna þess að hér er um einkafyrirtæki að ræða og dreifingu á þjónustu þessa fyrirtækis. Ég fæ ekki séð hvað það kemur hæstv. Alþingi við eða ríkisvaldinu.
    Ég mundi alveg eins vilja spyrja: Hvað hefur verið gert til þess að auðvelda Siglfirðingum að ná móttöku erlendra sjónvarpsstöðva? Með alveg sama rétti finnst mér eðlilegt að fá svör við því á hvaða hátt verði hægt að stuðla að því að Siglfirðingar eigi þess kost að sjá hinar fjölbreyttu dagskrár Evrópuþjóðanna sem nú eru í boði.