Útbreiðsla Stöðvar 2
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Fyrirspyrjandi (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Aðeins til að útskýra tilgang minn með þessari spurningu. Það var til að fá skýr svör við því hvenær Siglfirðingar og þá væntanlega íbúar Stykkishólms sætu við sama borð og aðrir landsmenn varðandi það framboð á sjónvarpsefni sem til reiðu er hér innan lands.