Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegur forseti. Ég vil eins og aðrir þakka hv. málshefjanda fyrir að taka hér upp þetta mál. Ég fagna því tækifæri að geta skýrt Alþingi frá þeim ráðstöfunum sem þegar hefur verið gripið til og unnið er nú að í þessu sambandi.
Varðandi spurningar hv. 7. þm. Norðurl. e. er því til að svara að því miður er greiðsla jarðræktarframlaga, þ.e. þess hluta sem séð er fyrir á fjárlögum af útistandandi skuld vegna jarðræktarframlaga, föst vegna þess verkfalls sem yfir stendur en vonandi er að leysast og hefur svo verið um nokkurra vikna skeið. Til stóð að hefja greiðslur á þeim hluta þess framlags sem ætlunin var að greiða nú í vor í þann mund sem verkfallið hófst. Seinni hlutann var ætlunin að greiða í júnímánuði. Ég geri þess vegna ráð fyrir því að þær greiðslur berist bændum þegar að afloknu verkfalli og að fullu verði þetta greitt, þ.e. að svo miklu leyti sem séð er fyrir á fjárlögum, í júnímánuði. Þá mun ég taka upp viðræður við fjmrh. í framhaldi af setningu nýrra laga um jarðrækt, um uppgjör eldri skulda eða skulda vegna framkvæmda og þarf ekki að orðlengja um þá umræðu. Hún er hv. þm., sem afgreitt hafa fjárlög og jarðræktarlög á þessum vetri, vel kunn.
Um loðdýrarækt er það að segja að að hluta til er þegar búið að greiða út á þær ráðstafanir sem stjórnvöld hafa ákveðið. Þannig er til að mynda búið að greiða framlög vegna fóðurkostnaðar fyrir fyrstu fimm mánuði ársins. Söluskattur verður væntanlega endurgreiddur að svo miklu leyti sem fjárlög gera kleift í júnímánuði til loðdýrabænda og ýmsar fleiri ráðstafanir eru í gangi sem of langt mál yrði hér upp að telja.
Ég hef svo ekki fleiri orð hér um, virðulegi forseti. Ég legg áherslu á að þeirri nefnd, sem þegar hefur verið skipuð, er ætlað það hlutverk sérstaklega að safna saman upplýsingum um ástandið og koma með tillögur um nauðsynlegar aðgerðir. Sú vinna verður unnin á allra næstu sólarhringum eins fljótt og nokkur kostur er. Ég vona að menn sjái það m.a. af því að nefndin hélt sinn fyrsta fund þegar daginn eftir að hún var skipuð, hefur þegar gripið til ýmissa ráðstafana, skrifað öllum búnaðarsamböndum í landinu og er að setja sig í samband við fóðurinnflytjendur og innflytjendur á sáðvöru og fleiri aðila. Vonandi leiðir það til þess að unnt verði að draga úr áhrifum þessara harðinda eins og kostur er, eins og það er á valdi stjórnvalda, þó að það sé augljóst mál, því miður, að hversu vel sem menn leggja sig fram í þeim efnum hlýtur alltaf nokkurt tjón og óhagræði að leiða af tíðarfari eins og við höfum búið við að undanförnu.