Flm. (Þórhildur Þorleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir þál. á þskj. 632 um þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta. Aðrir flm. till. auk mín eru fimm hv. þingkonur Kvennalistans. Till. hljóðar svo:
,,Alþingi ályktar að fela félmrh. að koma á fót þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta.``
Ég hef á Alþingi oft gert málefni heyrnarskertra að umræðuefni í formi þáltill. og fyrirspurna. Ein slík þáltill. hefur þegar borið árangur þar eð hæstv. samgrh. hefur beitt sér fyrir því að neyðarsímaþjónustu fyrir heyrnarlausa yrði komið á hjá Landsíma Íslands. Sömuleiðis vona ég að hugað verði að einhverjum úrbótum í þjónustu við heyrnarlausa í sjónvarpi í framhaldi af fyrirspurn, en hv. menntmrh. hafði góð orð þar um.
Efni þessarar till. er ekki nýtt af nálinni. Till. sama efnis var flutt í fyrra en nú er hún flutt í örlítið breyttu formi. Till. hlaut þá ekki þá meðferð sem ég hefði kosið og er því endurflutt nú. Ástæðan fyrir því að till. náði ekki fram að ganga í fyrra, þrátt fyrr góðar undirtektir þingmanna og í umsögnum sem fengust í meðferð málsins í nefndinni, var sú að þær fréttir bárust að ef þjónusta af þessu tagi væri ekki þegar komin á þá væri hún alveg á næsta leyti. Síðan er liðið ár og ekkert bólar á þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta, þjónustumiðstöð þar sem heyrnarlausir eða heyrnarskertir gætu leitað sér nauðsynlegs stuðnings í þeirri viðleitni að rjúfa þann múr einangrunar sem er hlutskipti heyrnarlausra.
Skömmu eftir að þingi var slitið í fyrra kom út skýrsla nefndar félmrh. um málefni heyrnarlausra og niðurstaða könnunar á félagslegri stöðu heyrnarlausra. Nefnd þessi var skipuð 25. nóv. 1987. Er skemmst frá því að segja að hún staðfestir með ótvíræðum hætti að úrbóta sé þörf í málefnum þessa hóps og það fljótt og vel.
Í skýrslunni segir m.a., með leyfi forseta:
,,Könnunin nær til þeirra sem eru félagsmenn í Félagi heyrnarlausra, spurt var um fjölda og aldur heyrnarlausra, orsakir heyrnarleysis, aðstæður, húsnæði, fjölskylduaðstæður, atvinnuástand, tekjur, tryggingarbætur, afkomu, félagsleg tengsl, menntun, fullorðinsfræðslu og jafnframt kannað á hvaða sviðum heyrnarlausir njóti ekki þeirrar þjónustu sem heyrendur, njóta, almennt í tengslum við fjölmiðla, dagheimili, skóla, fullorðinsfræðslu, félagslega þjónustu. Enn fremur var könnuninni ætlað að leiða í ljós hver er þörf fyrir túlkaþjónustu hér á landi.
Niðurstöður eru um margt forvitnilegar, m.a. kemur í ljós að heyrnarlausir eru vinnusamur, samhentur hópur með mjög lágar tekjur og býr afar þröngt. Menntunarstaða heyrnarlausra er bágborin. Heyrnarleysi leiðir til mikillar einangrunar, sem veldur því að heyrnarlausir geta aðeins að takmörkuðu leyti nýtt sér það sem upp á er boðið í nútímaþjóðfélagi, og eru oft í vandræðum með að sinna einföldustu erindum daglegs lífs. Það atriði sem brýnast er að sinna er að koma á fót túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa.``
Í greinargerð með till. segir einmitt:
,,Eitt brýnasta verkefnið er að koma á fót þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta. Þangað gætu þeir sótt ýmsa þá aðstoð sem gerði þeim kleift að nýta betur þá þjónustu og möguleika sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Gera þeim þar með lífið auðveldara, jafnframt því sem þeir yrðu smám saman hæfari til að rjúfa einangrun sína, bæta menntun og lífskjör, sjálfum sér og þjóðfélaginu í heild til heilla.
Við slíka þjónustumiðstöð þyrftu að starfa túlkar sem heyrnarskertir gætu leitað til sér að kostnaðarlausu. Mörg dæmi mætti taka þar sem heyrnarskertir þurfa á túlkum að halda til að geta sinnt erindum, félagslífi, námi o.s.frv. Hafa verður hugfast að heyrnarskertir utan Stór-Reykjavíkursvæðis verða líka að eiga kost á aðstoð túlka sem þurfa þá að geta ferðast til heimabyggðar viðkomandi ef þörf krefur.
Félagsráðgjafi yrði að starfa við þjónustumiðstöðina heyrnarskertum til aðstoðar og leiðbeiningar. Hvort um yrði að ræða einn eða fleiri verður reynslan að leiða í ljós.
Textasímar eða tölvur eru mikilvæg hjálpartæki fyrir heyrnarskerta. Ef slík tæki væru fyrir hendi í þjónustumiðstöðinni gætu heyrnarskertir nýtt sér þá þjónustu og rekið fjölmörg þau erindi sem öðrum þegnum þjóðfélagsins þykir sjálfsagt að gera símleiðis og spara þeim þannig spor og fyrirhöfn. Auðvitað er bæði sjálfsagt og æskilegt að öllum stórum stofnunum og fyrirtækjum væri gert að hafa textasíma --- eða tölvu við skiptiborð --- líkt og framfylgja á reglum um aðgengi fyrir fatlaða, en þó slíkt næði fram að ganga mundi það aldrei leysa að fullu vanda heyrnarskertra varðandi samband þeirra við umheiminn.``
Eins og ég sagði áðan er margt sem þyrfti að laga til að heyrnarlausir eða heyrnarskertir geti að svo miklu leyti sem unnt er staðið jafnfætis öðrum þegnum þjóðfélagsins og nýtt sér þau tækifæri sem bjóðast. En samkvæmt niðurstöðu könnunarinnar eru nokkrir þættir mest áberandi þar sem þörfin er
brýnust á úrbótum. Ein spurningin í könnuninni hljóðaði svo, með leyfi forseta: ,,Hvað skortir mest í þjónustu við heyrnarlausa?`` Það er skemmst frá því að segja að 81% aðspurðra nefna túlka, 66% nefna neyðarþjónustu og textasíma, 63% nefna félagsráðgjöf og 24% nefna textasíma. Þetta birtist síðan í ýmsum myndum í öðrum spurningum í könnuninni. En allt ber að sama brunni: túlkar, textasímar og ráðgjöf er það sem heyrnarlausa eða heyrnarskerta skortir helst.
Það er einmitt þessi þjónusta sem ætlunin er að bjóða upp á í þjónustumiðstöð eins og hér er lagt til að komið verði á fót. Þar væri hægt að leita aðstoðar túlka, þar yrði textasími með tilheyrandi þjónustu og þar yrði ráðgjöf til handa þeim sem á henni þyrftu að halda. Það er því mín von að þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta verði að veruleika og það fyrr en síðar.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta meira að sinni, en vil gjarnan gera lokaorð skýrslunnar um málefni heyrnarlausra að mínum. En þar segir, með leyfi
forseta:
,,Af niðurstöðum þessarar könnunar má draga þá ályktun að heyrnarlausir fari nokkuð á mis við þá þjónustu sem hið opinbera annast og á þetta fyrst og fremst við um menntunarmöguleika. Heyrnarlaus maður þarfnast túlkunar í skólum. Áhugi fyrir menntun er mikill. Með aukinni túlkaþjónustu mun menntun aukast og verða fjölbreyttari sem aftur leiðir til betri lífsafkomu og aðstæðna hinna heyrnarlausu. Á sviði fölmiðlunar er einnig þörf úrbóta. Heyrnarlausir fara á mis við nær allt íslenskt efni í sjónvarpi. Úrbætur eru í því fólgnar að birta texta með og enn fremur með öllu erlendu efni þar sem íslenskt talmál fylgir. Að auki er það greinileg ósk heyrnarlausra að fá félagsráðgjöf fyrir sinn hóp þar sem samskipti gætu farið fram á aðaltjáningamiðli hins heyrnarlausa, táknmáli.``
Þjónustumiðstöð fyrir heyrnarlausa er stærsta og árangursríkasta skrefið sem hægt er að stíga nú í þá átt að rétta kjör og bæta aðstöðu þessa hóps fatlaðra.
Að umræðu lokinni legg ég til að málinu verði vísað til hv. félmn. og síðari umræðu.