Skýrsla umboðsmanns Alþingis
Fimmtudaginn 18. maí 1989

     Ragnhildur Helgadóttir:
    Frú forseti. Það eru nokkur tíðindi í sögu mannréttindamála á Íslandi þegar fyrsta skýrsla umboðsmanns Alþingis er lögð fram til umræðu. Það væri vel ef við á Alþingi gætum sagt að við hefðum sjálf brugðist við ábendingum umboðsmanns með snöggum hætti. Vissulega tek ég undir gagnrýnisorð forseta Nd., hv. 4. þm. Reykn., sem hér talaði áðan, en ég hygg að Alþingi þurfi sjálft að gera hreint fyrir sínum eigin dyrum og megi vel líta til þess að við höfum um langan aldur verið aðilar að ýmiss konar þjóðréttarsamningum sem fela í sér aukin réttindi borgurum til handa án þess að við höfum sinnt því að lögleiða ákvæði þeirra. Nú er það ljóst að aðild að slíkum samningum felur í sér skyldu til þess að laga löggjöfina að skilyrðum sáttmálans en hitt er líka ljóst, að því er mannréttindaákvæðin varðar og þá fyrst og fremst Mannréttindasáttmála Evrópuráðsins, að við höfum ekki lögtekið sáttmálann sem slíkan né einstök ákvæði hans á Íslandi. Meira að segja var það svo að sú sem hérna stendur háði eitt sinn baráttu fyrir því að lögtekin væru á Íslandi þau ákvæði Mannréttindasáttmálans sem fjölluðu um rétt foreldra til að ráða uppeldi barna sinna. Hér voru þá á Alþingi ýmsir sem tortryggðu þetta ákvæði mjög, en þó var það í sáttmála sem við höfðum verið aðilar að áratugum saman.
    Svona er þetta, því miður. Við erum þátttakendur og aðilar að ýmsum samningum sem eiga að tryggja réttindi borgaranna og við teljum að staða Íslands sé mjög sterk að þessu leyti, við lofum Ísland sem réttarríki og við lofum réttindi einstakra borgara á Íslandi. En erum við alveg viss um að við stöndum nægilega vel að þessu leyti? Erum við alveg viss um að við höfum með löggjöf treyst ýmis réttindi borgaranna, einkum í baráttu einstaklinganna við kerfið, eins og stundum er kallað, í baráttu einstaklinganna fyrir rétti sínum gagnvart stjórnsýslunni, gagnvart hinu mikla valdi sem einstaklingarnir hafa oft á tíðum ekki tök á að rata til hvað þá að rata um flókna stigu þess sama valds eða kerfis? Þess vegna eru lög sem tryggja meðferð mála einstaklinga gagnvart stjórnsýslunni, eða stjórnsýslulög, mjög mikilvæg til að treysta réttaröryggi manna svo og þau lög sem þessi skýrsla byggir á, þ.e. lögin um umboðsmann Alþingis. Þau eiga fyrst og fremst að þjóna einstaklingunum í baráttu þeirra gagnvart því ofurefli sem ríkisvaldið oft á tíðum er. Því er það þegar við höfum á Alþingi sett lög um slíkt starf þá þykir mér við vera siðferðilega bundin við að sinna þeim ábendingum sem frá þessum trúnaðarmanni Alþingis koma.
    Við þetta bætist að það er algjörlega ljóst að á okkar tímum og í heimi mikillar fjölmiðlunar og aukinnar tækni er enn meiri nauðsyn en áður að styrkja stöðu einstaklingsins í baráttu hans fyrir eigin sjálfsögðum rétti sem við teljum ríki okkar byggja á. Við þekkjum sorgleg dæmi þess frá ýmsum ríkjum hvernig einstaklingar hafa lotið í lægra haldi vegna þess að enginn var til forsvars þeim í baráttunni við

hinn fjórða þátt valdsins, ef svo má segja, þ.e. fjölmiðlana. Slík tilvik leiða hugann að því hve sjálfsagt það er að löggjafinn hafi úrræði sem einstaklingarnir geti notað til að reka réttar síns og varðveita rétt sinn gagnvart stjórnsýslunni og gagnvart þeim þáttum ríkisvaldsins sem kynni að sjást yfir sjálfsagðan rétt einstaklinga. Við viljum að sú stofnun sem við höfum hér komið á laggirnar verði til þess að auka réttaröryggi manna. Því langar mig til að nota þetta tækifæri til þess að hvetja til þess, sem ég reyndar hef gert áður, að alþingismenn standi saman um það á hausti komanda að lögfesta öll ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta hefur verið gert í meiri hluta þeirra ríkja sem eru aðilar að þessum sáttmála og ég skil ekki hvað Íslendingum er að vanbúnaði að þessu leyti.
    Ég vildi óska þess að þeir sem efast um þetta hefðu átt þess kost að vera viðstaddir fund sem við nokkrir alþingismenn sátum fyrir nokkrum dögum, nánar tiltekið 10. maí, þar sem mannréttindabaráttumaðurinn Lech Walesa frá Póllandi sat fund ásamt þingmannanefnd í Evrópuráðinu í tilefni af því að hann var þangað kominn til að taka við mannréttindaverðlaunum Evrópu. Hann sagði: ,,Þið í Vestur-Evrópu sem búið við öll þau mannréttindi sem raun ber vitni komið okkur til hjálpar, hjálpið okkur að byggja upp lýðræði og mannréttindi í okkar ríki. Við getum það ekki ein. Komið þið okkur til hjálpar. Leyfið okkur að taka þátt í mannréttindastarfi ykkar.`` Þetta sagði Lech Walesa á þessum fundi sem fjórir íslenskir þingmenn sátu. Þetta ásamt mörgu fleiru sem þessi gestur Evrópuráðsins og mikli mannréttindafrömuður sagði færði okkur enn á ný heim sanninn um það hvers virði það er að hafa skýr ákvæði um mannréttindi einstaklingum til handa í þjóðfélögum okkar og að fara eftir þeim. Að þau tæki sem við höfum til þess að aðstoða einstaklingana í baráttunni fyrir réttindum sínum í starfinu að sanngjarnri og réttri meðhöndlun mála. Ég held að þeir sem þarna voru viðstaddir hafi enn á ný sannfærst um hina miklu nauðsyn þessa. Því vitna ég til þessa að ég tel það renna stoðum undir þau rök sem eru fyrir því að við lögfestum mannréttindaákvæði frekar en við höfum gert.