Kristinn Pétursson:
Hæstv. forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka þátt í þessari umræðu en orð síðasta ræðumanns, hv. 4. þm. Reykn., urðu til þess að ég mátti til með að koma aðeins upp. Hann tók svo til orða að stjórnarskráin íslenska væri gölluð og úrelt. Ég er honum ekki sammála um þetta. Hins vegar gæti vel verið að segja mætti að íslenskir stjórnmálamenn væru gallaðir og úreltir því það eru þó nokkur ákvæði stjórnarskrárinnar sem hæstv. Alþingi hefur ekki verið nógu duglegt við að virða. Þar á ég sérstaklega við ákvæði varðandi fjárlög. Það er t.d. ekki enn þann dag í dag farið að leggja fram frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1988 þótt samkvæmt stjórnarskránni hefði átt að gera það í fyrrahaust, svo maður nefni nú eitthvert dæmi.
Hv. þm. var tíðrætt um mannréttindi og að það þyrfti að skipa nefnd sérfróðra aðila til þess að endurskoða mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. 67. gr. stjórnarskrárinnar er nú t.d. um það að eignarrétturinn sé friðhelgur, engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji, þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. Það gengur alla vega ekki gagnvart þessari grein að rupla og rányrkja eigið fé íslenskra atvinnuvega eins og gert er þessi missirin. Það virðist enginn áhugi fyrir því í hæstv. Alþingi að ræða það atriði og stjórnarmeirihlutinn lætur sér fátt um finnast þó að verið sé að reyna að fitja upp á umræðum um það atriði.
Svo kemur hæstv. forseti Nd. og talar um mannréttindi, það þurfi að endurskoða stjórnarskrána út af einhverjum mannréttindaákvæðum. Hvernig væri að byrja á því að virða þessa stjórnarskrá sem er í gildi? Ég held að það væri bærilegt. Hv. þm. sagði að það þyrfti að leggja línur um einhverja valkosti í sambandi við mannréttindamál. Ég held að það þyrfti að leggja línur um valkosti við það að skoða hvernig eigi að virða stjórnarskrána í dag og þá varðandi þessi tvö atriði sem ég tel að sé Alþingi til vansæmdar, þ.e. fjáraukalög fyrir árið 1988 og hvernig farið er með eigið fé undirstöðufyrirtækja landsmanna. Það ætti að byrja á því að virða stjórnarskrána sem er í gildi áður en farið er að þvæla um að endurskoða hana.