Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Hv. síðasti ræðumaður kom kannski inn á það sem mér þótti hvað athyglisverðast í mjög athyglisverðri ræðu hv. þm. Guðna Ágústssonar. Það var sérstaklega það að nefndaformenn skuli leyfa sér að loka nefndum viku til tíu dögum fyrir þingslit og jafnvel fyrr, hann hefur varla vitað þá hvenær átti að slíta þinginu, vitandi það að í nefndinni voru 14 góð mál eins og hann sagði. Hann bara lokar viku til tíu dögum áður á 14 góð mál. Það er allt í lagi að loka á slæm mál, en þegar formaður nefndarinar kemur hér upp og viðurkennir að hann loki nefndinni á 14 góð mál hljóta menn að bregðast við og spyrja: Hvað er að gerast? Hvernig starfar þingið? Eru allar aðrar nefndir líka hættar? Erum við ekki allt of seint á ferðinni núna? Áttum við ekki að vera farin heim fyrir viku tíu dögum síðan? ( Gripið fram í: Sumar hafa aldrei byrjað í nefnd.) Það er alveg rétt. En hvar hefur hv. þm. verið? Ég held að hann sé með jafnlangan þingferil og ég. Ég hef orðið var við það að menn eru að vinna hér að málum og tala við nefndarmenn út um allt, út um alla veggi og vaða á þá eins og hann sagði. Það er þannig m.a. sem menn eru að vinna sínu máli framgang innan nefnda. Það er því alveg fyrir neðan allar hellur að hlusta á svona málflutning.
Ég vil fara fram á það við hæstv. forseta, þó að ég sé óbreyttur þingmaður og viti ekki hversu breyttur þingmaður hv. þm. Guðni Ágústsson er, hann er þó eitthvað breyttur, að hann mælist til þess að nefndin verði kölluð saman. Þar verði ekki fjallað um málið, því búið er að fá allar umsagnir, heldur brtt. sem flestir nefndarmenn eru sáttir við.