Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Það verða greinilega næg verkefni fyrir hæstv. forseta deilda og Sþ. á næstunni að taka þessi mál, sem hér hafa verið rædd undir liðnum þingsköp, til athugunar og meðferðar. Er þess þá að vænta að málin skýrist eftir að fjallað hefur verið um þau á þeim vettvangi. Ég geri ekki ráð fyrir og skildi það svo að hv. 2. þm. Vestf. væri ekki að óska svara af þeim forseta sem hér situr nú. Því munu þessi mál væntanlega verða tekin fyrir á vettvangi forsetanna fyrr en seinna.