Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Óskað hefur verið eftir því að þessu máli verði frestað til morguns. Forseti taldi að það væri mikið fram undan á morgun þar sem órædd er vegáætlun en ef hv. þm. telja að þetta mál geti komið á dagskrá jafnframt henni á morgun er kannski ekki úr vegi að verða við þeirri beiðni til þess þá að koma í veg fyrir frekari umræðu um þingsköp. En þá verður þetta mál líka tekið á dagskrá á morgun og rætt.