Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Föstudaginn 19. maí 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
    Herra forseti. Hér er um að ræða frv. sem er nánast innihaldslega og efnislega samhljóða frv. sem áður hafði verið afgreitt hér í deildinni og fjallað hafði verið um í hv. fjh.- og viðskn. Munurinn á þessum frv. er sá að í frv. sem hér er til umræðu er eingöngu fjallað um aðild starfsmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Í hinu frv., sem við höfðum áður afgreitt, var fjallað um það atriði auk ýmissa annarra sem okkur var tjáð að um væri samkomulag. Við nánari athugun málsins kom síðar í ljós í hv. Nd. að um sum þeirra atriða var ekki samkomulag og var þá brugðið á það ráð í hv. Nd. að flytja nýtt frv. sem tryggir það meginatriði sem hinu var ætlað að tryggja, þ.e. fulla aðild starfsmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands að lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
    Þetta frv. er flutt í fullu samráði við og með vitund forvígismanna starfsmanna og hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitarinnar.
    Ákvæði laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins eru í endurskoðun og þau atriði sem voru í fyrra frv. koma því ekki til ákvörðunar Alþingis að þessu sinni heldur hljóta þau að endurskoðast með öðrum. En þetta frv. er mjög stutt og einfalt að efni eins og ég hef raunar sagt og nefndin er sammála um að mæla með því að það verði samþykkt óbreytt eins og það liggur fyrir frá Nd..
    Danfríður Skarphéðinsdóttir sat þennan fund nefndarinnar og er samþykk þessu áliti en Margrét Frímannsdóttir var fjarstödd afgreiðsluna.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.