Lögreglumenn
Föstudaginn 19. maí 1989

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég vil aðeins út af þessu frv. taka fram um það sem kemur fram í 1. gr., þ.e. að engan megi skipa lögreglumann eftir 1. júlí 1990 án þess að hann hafi lokið námi í Lögregluskóla ríkisins, að það er svo að það er sjálfsagt og nauðsynlegt að að því sé stefnt og eins og nú háttar málum hjá lögreglunni í Reykjavík eru aðeins þrír menn af tæplega 260 mönnum, ef ég man rétt, sem ekki uppfylla þessi skilyrði. Hitt er svo annað mál að aðalatriðið er að efla svo Lögregluskóla ríkisins að hann geti staðið undir nauðsynlegum skyldum. Dómsmrn. hafði þegar ákveðið að að þessu skyldi unnið, en hitt er svo annað mál að það kunna að verða einhver vandkvæði á nokkrum stöðum á landinu að uppfylla þessi skilyrði um mitt ár 1990 án þess að ég vilji nokkuð um það fullyrða. Það má því telja að sumu leyti vafasamt að festa þetta mál á þessu stigi svo kyrfilega í lögum því að hvað sem nauðsynlegri menntun líður þarf að halda uppi löggæslu í landinu á hverjum tíma.
    Ég hafði talið að með þeim ákvörðunum sem þegar hafa verið teknar í dómsmrn. hafi framgangur þessa vilja í reynd verið tryggður, en það er mjög til siðs að festa margvíslegan vilja í lögum. Ég er mjög efins um að það sé rétt stefna að ganga allt of langt í því, ekki aðeins í þessu máli heldur í mörgum öðrum, þótt ég sé algjörlega sammála þeim vilja sem hér kemur fram.
    Að því er varðar 2. gr. frv. hafði dómsmrn. einnig fallist á og tekið undir það að lögreglumönnum skyldi bætt meiðsli og tjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns og það verður að teljast eðlilegt að menn sem geta lent í ryskingum hvenær sem er taki ekki þá miklu áhættu sem þeir hafa í reynd þurft að taka á undanförnum árum.
    Dómsmrn. hefur á undanförnum mánuðum unnið að því að kaupa tryggingu fyrir alla löggæslumenn þannig að þessi vilji kæmist til framkvæmda með þeim hætti og má segja að því máli sé nánast lokið. En það er eins með það og hið fyrra að auðvitað sakar ekki að taka það fram í löggjöf og má segja að það sé tryggara, en ég tel að með þeirri vinnu sem hefur verið unnin undanfarna mánuði á þessu sviði hafi framkvæmd þessa máls verið tryggð.
    Ég ætla ekki að segja neitt fleira um þetta mál, en í ljósi þess sem ég hef hér sagt mun ég greiða atkvæði með þessu máli en vildi gera grein fyrir stöðu þessara mála og þeim vanda sem kann að koma upp á einstaka stað um mitt ár 1990 þó að of snemmt sé að fullyrða um það. En ég vil þá að þingmenn geri sér ljóst að það kunni að þurfa meiri fjárveitingar til þessara mála á árinu 1990 til að koma þessum vilja í framkvæmd því að það kostar allmikið að mennta hvern lögreglumann því bæði er hann á launum meðan á námi stendur og einnig þarf að greiða uppihaldskostnað utanbæjarmanna. Ég vildi að þingmönnum væri ljóst að þetta mun væntanlega geta þýtt meira fé á árinu 1990 sem dómsmrn. mun að sjálfsögðu sækja um í samræmi við þennan vilja þingsins.