Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hæstv. forseti. Því miður missti ég af fyrri hluta ræðu hv. þm. Stefáns Guðmundssonar, en ég heyrði nóg til þess að ég veit að hann er óánægður með frv., húsnæðismálafrv., og færði fyrir því ýmiss konar rök. Ég er ekkert ánægður með það heldur fremur en hann. Það eru á því margir og meiri háttar gallar.
Þessi yfirlýsing út af fyrir sig af hálfu stjórnarþingmanns í þessari hv. deild eru mikilvæg og merkileg og hlýtur að vekja athygli að hann sé í hjarta sínu andvígur frv. en telji hins vegar að það sé búið að semja og hnýta hnúta þannig að jafnvel hans atkvæði hér í deildinni, þar sem þó munar einmitt einu atkvæði til að koma máli eins og þessu fyrir kattarnef, gildi ekki. Þessi yfirlýsing er merkileg og mikilvæg einmitt vegna þess að ég þekki nú að góðu einu þennan hv. þm. Þó við séum pólitískir andstæðingar og höfum háð marga deiluna held ég að hún hafi af beggja hálfu alltaf verið heiðarleg og drengileg.
En hitt er öllu merkilegra að hann lýsir því yfir í lok ræðu sinnar að slíkt vopnahlé af hans hálfu muni ekki gilda lengur en til haustsins. Það er ljóst að þessum þingmanni ofbýður ýmislegt í því sem núv. hæstv. ríkisstjórn er að bauka og bralla og ég hygg að það eigi ekki við þetta mál eitt heldur hljóti það að rista dýpra. Ég er mjög ánægður með að við skulum fá þessa yfirlýsingu og væntanlega kemst hún til þjóðarinnar vegna þess að þetta er ekki ómerkilegasta yfirlýsing þessa dags eða síðustu daga. Þetta er merkasta yfirlýsing sem gefin hefur verið í þinginu núna um langa tíð.