Hagþjónusta landbúnaðarins
Föstudaginn 19. maí 1989

     Frsm. landbn. (Skúli Alexandersson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. landbn. Ed. um Hagþjónustu landbúnaðarins. Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og Nd. afgreiddi það.
    Undir nál. skrifa auk mín Guðrún Agnarsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Egill Jónsson, Karvel Pálmason, Þorv. Garðar Kristjánsson og Jón Helgason.