Guðmundur Ágústsson:
Virðulegi forseti. Ég fagna því að hv. fjh.- og viðskn. skyldi komast að þeirri niðurstöðu sem raun er á og áliti hv. formanns fjh.- og viðskn. Við 1. umr. málsins taldi ég að hér væri um mikið réttindamál fyrir kröfueigendur að ræða og sérstaklega þá sem hafa fengið veðréttindi sem tryggingu fyrir sínum kröfuréttindum. Ef þetta mál hefði ekki gengið fram væru líkindi fyrir því að hér væri um stjórnarskrárbrot að ræða þar sem veðréttindi eru ein tegund eignarréttar og að sjálfsögðu varin af stjórnarskránni. Sem betur fer hefur ekki komið til þess í skiptarétti hingað til að á þetta hafi reynt, en þess var ekki langt að bíða miðað við þær upplýsingar sem ég hef aflað mér.
Ég vil einnig fagna því að þessi hv. deild skyldi komast að niðurstöðu og skáka þar með framkvæmdarvaldinu, en hæstv. fjmrh. mælti eindregið á móti þessu frv. af óskiljanlegum ástæðum og með rökum sem mér eru alveg hulin og eru ekki í nokkrum tengslum við það sem er að gerast á fjármagnsmarkaði. Menn verða að átta sig á því að veðréttindi eru þau grunnréttindi sem verður að viðhalda til að geta skapað hér eðlilegan fjármagnsmarkað. Mér fyndist mjög gott að fá hæstv. viðskrh. hingað til að lýsa sinni skoðun, en hann hefur ekki enn þá sagt sína skoðun á þessu máli.
En það er annað athyglisvert við frv., að flm. skuli vera úr Sjálfstfl. þar sem allir þingmenn Sjálfstfl. greiddu atkvæði með frv. á síðasta þingi þar sem það ákvæði kom inn sem nú á að breyta. Ég held að ég hafi verið eini þingmaðurinn sem mótmælti ákvæðinu þegar það kom inn í skattalögin, og það var vísað til þess að ég væri ungur og óreyndur í þingstörfum og hefði ekki nokkurt vit á tekju- og eignarskatti. En það vill sem betur fer oft vera þannig að það sem hjáróma heyrist vill vera hið rétta þegar allt kemur til alls.