Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt og er frv. þetta fylgifrv. með frv. um húsnæðismál sem var afgreitt fyrir stundu sem lög frá hinu háa Alþingi.
Meiri hl. fjh.- og viðskn. leggur til að þetta frumvarp verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Nd.
Hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk þessu nál.