Afgreiðsla mála úr nefndum
Föstudaginn 19. maí 1989

     Forseti (Jón Helgason):
    Það eru enn þá ókomin mál aftur frá Nd. og eitt mál vorum við nú að afgreiða til 3. umr. þannig að það eru nokkur mál enn óafgreidd í nefndinni. En ég mun að sjálfsögðu verða við beiðni hv. 2. þm. Norðurl. e. að fresta því að slíta fundi til kl. hálfsex þannig að menn geti haldið áfram að ræðast við og semja hér um mál eins og gengið hefur mjög vel í dag.