Meðferð máls í þingnefnd
Föstudaginn 19. maí 1989

     Jón Sæmundur Sigurjónsson:
    Virðulegur forseti. Það er alveg rétt sem kom fram hjá hv. 1. þm. Vestf. sem kvartaði undan því að hans mál, sem flutt var um húsnæðismál, hefði ekki fengið afgreiðslu í félmn. Félmn. hefur haldið 25 fundi á þessum vetri og tekið fyrir fjölda mála og þar á meðal tvö viðamikil mál um húsnæðismál. Húsnæðismál hafa þannig tekið drjúgan tíma af störfum nefndarinnar. Meiri hl. nefndarinnar virtist mál hv. þingmanns þannig vaxið að það væri e.t.v. full ástæða til þess að vísa því til ríkisstjórnarinnar til nánari athugunar. Á seinni stigum þess máls bar ég það undir flutningsmann hvort honum þætti rétt að það væri gert eða hvort hann kærði sig frekar um að málið lægi áfram í nefndinni ef hann kærði sig svo um að flytja það aftur á hausti komanda. Þá tjáði hann mér að hann mundi kvarta undan þessum vinnubrögðum sem hann hefur hér gert og ætla ég ekki að hafa fleiri orð um það.