Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Þau húsnæðisfrumvörp sem hv. formaður félmn. segir að hafi tekið mestallan tíma nefndarinnar voru nú ekki flutt fyrr en mörgum mánuðum eftir að þetta frv. kom til félmn. Við mig var ekki talað um málið fyrr en fyrir nokkrum dögum. Eftir stendur það að mínum dómi að hér er traðkað á þingræði og lýðræði með þessum vinnubrögðum. Það er engin afsökun fyrir því að liggja á málum. Það er engin skylda að samþykkja mál en það er skylda að vinna að því að afgreiða mál út úr nefndum, sérstaklega þau mál sem eru borin fram í upphafi þings og nægur tími er til að vinna að.