Meðferð máls í þingnefnd
Föstudaginn 19. maí 1989

     Matthías Á. Mathiesen:
    Herra forseti. Til þess að það verði skjalfest í þingtíðindum þá var þessari gagnrýni sem ég kom með hér áðan ekki beint að hæstv. forseta Nd. og ég heyrði að hv. 1. þm. Vestf. orðaði það nákvæmlega svo. Hér er verið að gagnrýna störf í nefndum og hér er verið að gagnrýna að í Sþ. liggja yfir 20 tillögur sem ekki hafa fengist ræddar.