Ólafur G. Einarsson:
    Herra forseti. Ég átti sæti í þeirri milliþinganefnd sem hafði þetta frv. um aðskilnað dómsvalds og framkvæmdarvalds í héraði til meðferðar. Ég skrifaði undir nál. meiri hl. sem mælti með frv. Ég var ekki með því að segja að brýna nauðsyn bæri til að samþykkja þetta mál á þessu þingi. Ég greiði ekki atkvæði.