Tekjustofnar sveitarfélaga
Föstudaginn 19. maí 1989

     Sighvatur Björgvinsson:
    Herra forseti. Það kúgar enginn menn til að ganga til samninga. Annaðhvort gera þeir það eða gera það ekki. Það var mín niðurstaða að ganga til þeirra samninga sem ég gerði grein fyrir áðan til þess að hægt væri að tryggja afgreiðslu verkaskiptamálsins sem í mínum huga er stærra og meira mál en þetta. (Gripið fram í.) Já ég veit það. Ég var að skýra frá því, virðulegi forseti, sem mér skilst að komi illa til skila til hv. þm. Geirs Haarde, að þetta var samkomulagsmál til að tryggja afgreiðslu þess frv. Ég er búinn að segja það þrisvar, virðulegi forseti, og ég vona að hv. þm. hafi heyrt og skilið það.
    Það var að sjálfsögðu mín eigin ákvörðun að ganga til þeirra samninga að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Mér finnst það ekki lítilmannlegt að skýra frá því áður en til atkvæðagreiðslu er gengið. Mér finnst það ekki lítilmannlegur háttur heldur þvert á móti. Mér finnst miklu réttara að skýra frá því áður en til atkvæðagreiðslu er gengið en láta hjá líða að gera það.
    Það var aðeins eitt sem ég vil þó leggja sérstaka áherslu á. Það var þetta: Eins og frá lögunum var gengið mætti ætla, ef ekki yrðu tekin af tvímæli um það, að það væri verið að heimila að undanþiggja aðstöðugjaldi alla starfsemi sem rekin yrði af sláturhúsum og alla starfsemi sem rekin yrði af mjólkurbúum og varðaði úrvinnslu mjólkur og mjólkurafurða. Með þeirri breytingu sem nú er búið að gera á tekjustofnalögunum er ekki lengur verið að undanþiggja áfengisátöppun mjólkurbúa og grautargerð og pökkun mjólkurbúa aðstöðugjaldi. Sú framför hefur þó orðið að nú verður þessi iðnaður skattlagður. Eins og frá málunum er gengið mætti hins vegar ætla að slík fyrirtæki gætu sett upp iðnframleiðslu svo sem eins og hvers konar úrvinnslu á kjöti hjá sláturhúsum og hvers konar úrvinnslu úr mjólk og mjólkurvörum, þar með talin sælgætisgerð og bakstur hjá mjólkurbúum. Ég ítreka þann skilning minn að ég lít ekki svo á. Ég lít svo á að með þessum undanþágum sé aðeins verið að undanþiggja aðstöðugjaldi þá eðlilegu starfsemi sem fram fer í sláturhúsum og þann úrvinnsluiðnað sem á sér stað í mjólkurbúum á hefðbundnum mjólkurframleiðsluvörum. Ég vildi gjarnan óska eftir því að formaður þeirrar nefndar sem um þetta mál hefur fjallað vildi láta í ljós skoðun sína á þessu atriði og það sé alveg skýrt með hvaða hætti verið er að gera þessa afgreiðslu.