Tekjustofnar sveitarfélaga
Föstudaginn 19. maí 1989

     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Það mál sem hér liggur fyrir og brtt. er vissulega umræðuvert. Það snýst um breytingar sem menn hafa verið að gera á álagningu aðstöðugjalds samkvæmt þessu frv. sem felur það í sér sem meginstefnu samkvæmt 36. gr. að hámark aðstöðugjalds skuli vera 1,3% af aðstöðugjaldsstofni og með því er stefnt að því að breyta þeirri mismunun sem hefur verið á álagningu þessara gjalda eftir atvinnurekstri eða atvinnugreinum. Ég tel þessa stefnu vera eðlilega og réttmæta og hún er í samræmi við viðleitni sem fram fór fyrir löngu, einum átta eða níu árum, þegar ég átti hlut að framkvæmdarvaldinu. Þá voru unnar tillögur og meira að segja frv. sem að vísu aldrei komst inn á borð Alþingis um þetta efni sem liður í því að jafna starfsskilyrði atvinnugreina í landinu. Það fór fram mikil úttekt á því og var skilað um það gildum skýrslum á borð alþingismanna og oft eftir þeim kallað um jöfnun á starfsskilyrðum atvinnuveganna og það var tekið inn í iðnaðarstefnu sem samþykkt var hér á Alþingi vorið 1982 sem eitt af áhersluatriðum til þess að bæta stöðu iðnaðar í landinu að hann byggi þar ekki við allt önnur kjör varðandi greiðslu gjalda, skatta og aðstöðugjalda en t.d. sjávarútvegur. Ég studdi þessa stefnu og bar hana fram. Ég held að það sé mjög mikill misskilningur að telja að það sé verið að gera atvinnulífi í landinu einhvern sérstakan greiða með því að undanþiggja sérstök atvinnufyrirtæki tilteknum gjöldum til sveitarfélaga og það þurfi a.m.k. að færa mjög gild rök fyrir undanþágum frá slíkri almennri stefnu. Ég tel t.d. að það hafi verið mikill bjarnargreiði við byggðarlögin út um land þegar sú stefna var, sem hefur gilt fram að þessu, að takmarka aðstöðugjald á útgerð og fiskvinnslu og hafa þær greiðslur langtum lægri til sveitarfélaganna, sjávarþorpanna vítt um landið en gjöld á verslun og þjónustu og almennan iðnað, en almennur iðnaður greiddi ef ég man rétt 1,3% eða rúmlega það í aðstöðugjald á meðan útgerðin var með 0,3% og fiskvinnslan með 0,65% í aðstöðugjald. Þetta hefur bitnað á sveitarfélögunum vítt um landið og því er sú stefna sem hér er tekin upp í frv. til mikilla bóta. Sú almenna stefna að ætla sér að bæta almenna rekstrarstöðu sjávarútvegsins í landinu t.d. með því að halda svona greiðslum lægri er mesti misskilningur. Allar greiðslur af þessu tagi eiga að koma inn í hin almennu rekstrarskilyrði og þar með gengisákvarðanir sem einn þátt af þeim og jafnast upp fyrir atvinnugreinina á ekki löngum tíma ef eðlilega er á málum haldið. Fyrir þetta hefur landsbyggðin greitt og landsbyggðin blætt af þessum misskilningi um eðli þessa máls með því að svipta sveitarfélögin víða um land stórum upphæðum af tekjum og setja þau þannig í mun verri stöðu til að halda uppi þjónustu við sitt fólk til jafns við það sem gerist hér á höfuðborgarsvæðinu þar sem þjónustan og viðskiptalífið blómstrar og hefur hirt yfir 3% af veltu þessara fyrirtækja í aðstöðugjöld. Í gegnum þetta kerfi hefur á löngum tíma verið flutt mikið fjármagn til sveitarsjóða á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma og

þrengt hefur verið að sveitarfélögum víða um landið.
    Ég fagna því vissulega að með þessu frv. er verið að breyta til þó svo að eftir standi heimild til sveitarstjórna um að ákveða mismunandi gjaldflokka, aðstöðugjald eftir tegundum atvinnurekstrar upp að hámarki 1,3% af aðstöðugjaldsstofni. Ég ætla að vona að sveitarfélögin út um landið fari ekki að láta undan þrýstingi einstakra fyrirtækja að halda niðri þessum greiðslum vegna rekstrarstöðu þeirra, en auðvitað má reikna með því að slíkur þrýstingur komi frá fyrirtækjunum þegar þessi heimild verður í lögum. En það er sveitarstjórnanna, fulltrúa almennings þar, að gera þau mál upp samkvæmt þeim ákvæðum sem liggja fyrir.
    Þá komum við að því sem hér er rætt í sambandi við þessa brtt., virðulegi forseti, sem liggur fyrir á þskj. 1225 um það að fella eingöngu starfsemi sláturhúsa undir undanþáguákvæðið skv. 34. gr. en fella niður hefðbundna framleiðslu mjólkurbúa sem tekið var inn í meðferð milli deilda, en upphaflegt frv. sem hér var lagt fram hafði ekki þetta ákvæði inni. Það var ekki gert ráð fyrir því í stjfrv. eins og það var lagt fram að sláturhús eða mjólkurbú yfirleitt nytu undanþágu frá þessum greiðslum. Mér var það ekki ljóst þegar málið var rætt hér og þessi brtt. kom til atkvæða upphaflega að hér væri um að ræða breytingu sem hafði verið gerð af Ed. eftir að frv. var lagt fram og hér var sem sagt ekki sú stefna sem mörkuð var af ríkisstjórninni þegar málið var flutt inn í þingið.
    En ekki er óeðlilegt að menn athugi þessa þætti eins og aðra, hvort eðlilegt sé að gera sérstaka undanþágu varðandi þennan rekstur. Ég greiddi því atkvæði gegn breytingunni og það í þeirri trú að hér væri umsamið ákvæði sem menn hefðu farið ofan í, stjórnarflokkarnir, og ætlaði ekkert að ganga gegn þeirri stefnu þegar málið var til afgreiðslu í Nd. Ég verð að segja, virðulegi forseti, að mér finnst orka mjög tvímælis að gera þær undanþágur sem hér er lagt til. Ég segi það að athuguðu máli. Ég tók ekki afstöðu til máls þegar það var öðru sinni til meðferðar hér í deildinni, við þá afgreiðslu. Mér er ljóst að sú breyting sem gerð hefur verið af Ed. að því er mjólkurbúin snertir er þrenging sem verður að teljast til bóta á þessu ákvæði og ber að sjálfsögðu ef
málið verður samþykkt með þeim hætti að túlka það þröngt þannig að eingöngu sé um hefðbundna framleiðslu mjólkurbúa að ræða. Ég tel hins vegar að röksemdirnar fyrir því, sem hér hafa verið bornar fram, að viðhalda þessari undanþágu til lengri tíma af einhverjum sanngirnissjónarmiðum gagnvart börnum eða verðlagi til neytenda séu á mjög völtum fótum og það megi með markaðri stefnu af hálfu stjórnvalda taka það mál inn í niðurgreiðslurnar og tryggja vöruverð til neytenda með þeim hætti sem sanngjarn er talinn og ég tel eðlilegt að málið verði athugað með tilliti til þess til frambúðar.
    Ég held að það sé ekki rétt hins vegar að stefna þessu máli í meiri velting en orðið er hér í þinginu að sinni og mun standa að því að greiða atkvæði með frv. eins og það liggur fyrir, þ.e. gegn þeirri brtt. sem

er á þskj. 1225, en það geri ég í trausti þess og með það í huga að þau undanþáguákvæði sem eru sett varðandi sláturhús og mjólkurstöðvar verði tekin upp til endurskoðunar þegar á næsta þingi og þá í ljósi bæði rekstrarstöðu þessara greina, sem hefur verið fært fram sem röksemd fyrir því að undanþiggja þau greiðslu á aðstöðugjaldi, og einnig með tilliti til verðlagningar. Það geta verið rök fyrir því, ég hef ekki sett mig það grannt inn í þetta mál, að það sé eitthvað í sambandi við skattlagningu á þessi fyrirtæki sem þurfi að athuga, sláturhús og mjólkurstöðvar, og fara yfir og það getur verið ástæða til þess að stjórnvöld gefi einhverjar tryggingar um niðurgreiðslur í sambandi við breytingar á þessu máli, þ.e. álagningu aðstöðugjalds á þennan rekstur. En hér er í rauninni um iðnað að ræða eins og hvern annan iðnað. Það er ekkert landbúnaðarmál sem slíkt sem hér er á ferðinni heldur er þetta iðnaður í landinu, úrvinnsla úr innlendu hráefni. Ég mun því standa að því að samþykkja þetta eins og það liggur fyrir frá Ed., en þá með það í huga og mun hafa frumkvæði að því ef ekki verða aðrir til þess, mér finnst hins vegar eðlilegt að það sé ríkisstjórn sem taki það upp í aðdraganda næsta þings, að fara yfir þessi mál með tilliti til þess að afnema undanþágu á aðstöðugjaldi til þessa rekstrar sem hér liggur fyrir, en fara þá yfir málin í heild, rekstrarstöðu fyrirtækjanna og verðlagningu á afurðunum. Ég vænti þess að eftir þessu verði munað af þeim sem með þessi mál fara, en mun annars taka á því eigi ég sæti á næsta þingi.