Eggert Haukdal:
Herra forseti. Ég verð satt að segja að harma þá umræðu sem fer fram við lokaafgreiðslu þessa máls og ég held að menn geri sér nánast ekki grein fyrir hvað þeir eru hér að gera. Þetta frv. er ekki bara stjfrv. Þetta er samkomulagsmál stjórnar og stjórnarandstöðu og það hefur verið unnið að þessu í báðum deildum og það eru allir aðilar sammála um þetta í meginatriðum. Og vegna hvers eru menn sammála? Þessi frumvörp bæði tvö, um verkaskiptingu og tekjustofna, eru unnin af þrautreyndum sveitarstjórnarmönnum úr öllum flokkum og njóta mikils stuðnings sveitarstjórnarmanna um allt land. ( FrS: Eins og frv. var í upphafi.) Nú við lokahnykk málsins dugar ekki að stefna málinu í hættu eins og hér er beinlínis verið að gera heldur átti að afgreiða málið eins og það kom frá Ed. og liggur hér fyrir.
Það gætir mikils misskilnings í umræðunni. Allar hækkanir á landbúnaðarvörum virka þannig að það dregur úr neyslunni. Það er hagsmunamál þorpanna úti á landi þar sem þessi fyrirtæki eru staðsett að neyslan haldist uppi. Það er meginmálið. Þá hafa starfsmenn þessara fyrirtækja nóg að gera. Það er miklu meira hagsmunamál þessara sveitarfélaga en að fá aðstöðugjaldsheimild.
Að undanförnu hefur byggðunum í landinu verið að blæða út. Samdrátturinn í landbúnaðinum virkar ekki bara á bændurna. Hann virkar á þorpin þar sem þjónustan er unnin við dreifbýlið. Ég vænti þess að hv. Nd. afgreiði málið óbreytt eins og það kom frá Ed.