Málefni aldraðra
Föstudaginn 19. maí 1989

     Frsm. meiri hl. heilbr.- og trn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um þetta frv. og fékk á sinn fund Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra og Lárus Ögmundsson skrifstofustjóra í fjmrn.
    Meiri hl. nefndarinnar fellst á afgreiðslu Ed. á málinu með þeirri breytingu sem meiri hl. gerir tillögu um á sérstöku þingskjali. Þá stendur nefndin sem heild einnig að nokkrum breytingum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali. Breyting meiri hl. nefndarinnar er gerð í samráði við ríkisskattstjóra. Er þar um að ræða nokkrar tæknilegar breytingar á 10. gr. er varða afmörkun á skattskyldum aðilum, tímaviðmiðanir varðandi liði er breytast samkvæmt vísitölum, orðalag tekjuviðmiðunar og annað orðalag. Ekki er í þessari till. um neinar efnisbreytingar að ræða.
    Undir þetta nál. skrifar meiri hl. nefndarinnar, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Jón Kristjánsson, Finnur Ingólfsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.
    Sú brtt. sem nefndin flytur sem heild fjallar í fyrsta lagi um breytingu á 8. gr., en hún varðar hlutverk þjónustuhóps aldraðra. Hún fjallar um að setja skuli upp í samvinnu við hinn aldraða samþætta áætlun um þjónustu, sbr. 15. gr., sem fjallar um heimaþjónustu aldraðra, sem byggir á samræmdu faglegu mati. Þá er breyting við 2. málsgr. 15. gr., en hún fjallar um betri skilgreiningu heimaþjónustunnar en orðalagið gaf til kynna í upphaflega frumvarpstextanum.
    Þá er breyting við 17. gr. 1. málsl. 2. tölul. Það má skoðast fyrst og fremst sem skerping á orðalagi.
    Við 18. gr. eru tvær breytingar. Þær má skoða sem skarpari skilgreiningu á tilgangi frv. þar sem fjallað er um aðstoð við aldraða til sjálfshjálpar.
    Þessa brtt. flytur nefndin í heild, þ.e. þeir sem ég taldi upp áður í meiri hl., en þar að auki Ragnhildur Helgadóttir og Geir H. Haarde. Þórhildur Þorleifsdóttir sat fundi nefndarinnar og hún stendur einnig að þessari till.