Félagsmálaskóli alþýðu
Föstudaginn 19. maí 1989

     Frsm. meiri hl. félmn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Félmn. hefur fjallað um frv. til l. um Félagsmálaskóla alþýðu og leggur meiri hl. nefndarinnar til að það verði samþykkt eins og það kemur frá Ed. Eftirtaldir komu á fund nefndarinnar til viðræðna um frv.: Helgi Guðmundsson frá ASÍ, Þorvarður Elíasson frá Verslunarskóla Íslands, Sólrún B. Jensdóttir frá menntmrn., Þórarinn V. Þórarinsson og Hrafnhildur Stefánsdóttir frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Ásdís Sigurjónsdóttir og Gunnar Haraldsson frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun.
    Margar athyglisverðar ábendingar komu fram sem meiri hl. sér þó ekki ástæðu til að fjölyrða um, en vill leggja áherslu á að skólinn verði opinn öllum sem áhuga hafa á að stunda það nám sem hann býður upp á.
    Guðrún Helgadóttir var fjarstödd lokaafgreiðslu málsins, en er samþykk efni frv. Undir þetta rita Jón Kristjánsson, Eggert Haukdal, Alexander Stefánsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.