Skýrsla um Sigló hf.
Föstudaginn 19. maí 1989

     Friðrik Sophusson:
    Virðulegi forseti. Ég mun ekki tefja þennan fund, enda ekki ástæða til. Ég finn mig þó tilknúinn til þess að biðja um orðið um þingsköp. Ástæðan er sú að á dagskrá fundar í Sþ. í gær var skýrsla um Sigló, en vegna fjarveru hæstv. fjmrh. var það mál ekki rætt í gær né heldur var það á dagskrá í dag, enda fjmrh. erlendis og óvíst að umræða um það mál geti haldið áfram sökum fjarveru hans.
    Um þessa skýrslu báðu ellefu þingmenn Sjálfstfl. á þskj. 1066 og þetta var 501. mál þingsins. Þar sagði í upphafi, með leyfi forseta:
    ,,Með vísan til 30. gr. laga um þingsköp og 2. málsl. fyrri mgr. 3. gr. laga nr. 12/1986, um ríkisendurskoðun, óskum við undirritaðir þingmenn eftir skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu Siglósíldar í tilefni af umræðum fjmrh. í dag í umræðum um fsp. um Sigló hf. í Sþ.``
    Síðan er beðið um upplýsingar frá Ríkisendurskoðun en ekki mat á þeim upplýsingum sem um var beðið. Þegar síðan þessi skýrsla lá fyrir og var tekin til umræðu kom í ljós að aftast í skýrslunni er fskj. IV, sem er bréf hæstv. fjmrh. til forseta Sþ., Guðrúnar Helgadóttur, dags. 8. maí. Þar er beðið um viðbótarupplýsingar og síðan segir í bréfinu, með leyfi forseta:
    ,,Þá óskast upplýst hvort fordæmi séu í samningum ríkisins fyrir jafnlöngum greiðslufresti og Sigló hf. hefur fengið, sérstaklega ef um vanskil hefur verið að ræða, og þá jafnhagstæðum skilmálum.``
    Í upphafi og inngangsorðum þessarar skýrslu frá Ríkisendurskoðun segir síðan að með bréfi forseta Sþ., sem var dags. 6. maí 1989, hafi þess verið óskað að Ríkisendurskoðun ynni skýrslu um málefni Sigló hf. og sagt að það komi fram á þskj. í Sþ. 1066. Síðan segir, með leyfi forseta:
    ,,Þá barst Ríkisendurskoðun afrit`` ég undirstrika afrit ,,af bréfi, dags. 8. maí 1989, til forseta sameinaðs Alþingis frá fjmrh., Ólafi Ragnari Grímssyni, þar sem óskað var eftir viðbótarupplýsingum í skýrslu um málefni Sigló hf. o.fl.`` Og síðan segir: ,,Í skýrslu þessari eru svör Ríkisendurskoðunar við þeim fyrirspurnum sem óskað er eftir á þskj. 1066 frá 5. maí 1989, ásamt viðbótarupplýsingum sem stofnunin telur ástæðu til að vekja athygli á.`` Og svo: ,,Beiðni fjmrh. um frekari upplýsingar um málefni Sigló hf. er svarað í skýrslu þessari. Hins vegar mun það taka stofnunina nokkurn tíma að afla upplýsinga er varða sölu fyrirtækja í eigu ríkissjóðs`` o.s.frv.
    Þess ber að geta að í skýrslubeiðninni var vísað í 30. gr. þingskapalaga en þar er gert ráð fyrir því að níu þingmenn geti óskað skýrslu ráðherra um opinbert málefni. Einnig er vísað í lög um Ríkisendurskoðun þar sem segir í 2. málsl. 3. gr. laganna: ,,Forsetar Alþingis geta þó ýmist að eigin frumkvæði eða samkvæmt óskum þingmanna krafist skýrslna um einstök mál.`` Ég hygg að flestir álíti að til þess að skýrslubeiðnin geti orðið þingleg sem svo er kölluð, þurfi níu þingmenn samkvæmt þingskapalögum að biðja um skýrsluna.

    Ég vil taka það fram að Ríkisendurskoðun heyrir að sjálfsögðu undir Alþingi en ekki undir framkvæmdarvaldið. Beiðni sjálfstæðisþingmannanna var stíluð á forseta Sþ. sem síðan framsendi erindið til Ríkisendurskoðunar, enda er forseti Sþ. æðsti yfirmaður Ríkisendurskoðunar. Beiðnin var sett á þskj. eins og gert er um aðrar skýrslubeiðnir og þess vegna er beiðnin þinglegt skjal.
    Í lögunum um Ríkisendurskoðun segir að forsetar Alþingis geti beðið um skýrslu, jafnvel þótt þingmenn hafi ekki farið fram á slíkar skýrslur, en varla, og vil ég þá undirstrika mína skoðun á því, er hægt að blanda þessu tvennu saman. Ef níu þingmenn biðja um skýrslu er varla eðlilegt að einstakir þingmenn né heldur forseti sameinaðs þings geti blandað öðrum þáttum inn í þá skýrslubeiðni eins og virðist hafa verið gert í þessu tilviki. Ef þetta hefði hins vegar verið gert með vitund og vilja forseta Sþ. er hér um að ræða nýja verklagsreglu sem þýðir það að einstakir þingmenn geti óskað eftir því að það sé lagt mat á sumar upplýsingar sem koma fram í skýrslu samkvæmt skýrslubeiðni á þinglegu skjali en það þurfi ekki að gerast í öllum tilvikum.
    Ég óska eftir því að hæstv. forseti láti álit sitt í ljós á því þegar svona samblöndun á sér stað, annars vegar þegar um er að ræða þinglega beiðni ellefu þingmanna og hins vegar einkabeiðni einstaks þingmanns eða þingmannsígildis því að hæstv. fjmrh. hefur réttindi þingmanns samkvæmt þingskapalögum vegna þess að hann er ráðherra í ríkisstjórn Íslands um þessar mundir og gilda að sjálfsögðu sömu réttindi honum til handa og þeim sem kosnir hafa verið á Alþingi. Þess vegna er fyrst að spyrja hvort hæstv. forseti hafi framsent erindi Ólafs Ragnars Grímssonar, hæstv. ráðherra. Þetta vildi ég nefna hér og óska eftir áliti hæstv. forseta vegna þess að lagt var mat á eitt tiltekið atriði í þessari skýrslu sem varð til þess að það var eina uppsláttaratriðið sem kom fram í málgagni hæstv. ráðherra þegar Ríkisendurskoðun lagði mat á aðeins eitt tiltekið atriði, en það var um greiðsluskilmála til handa Sigló hf., en ekki á aðrar opinberar gerðir eins og t.d. þær er varða Nútímann og Farg hf.
    Þetta kemur fram m.a. í fimmtudagsútgáfu Þjóðviljans 11. maí þar sem í fimm dálka fyrirsögn segir: ,,Á sér ekki hliðstæðu.`` En það er orðalag skýrslu Ríkisendurskoðunar.
    Virðulegur forseti. Það er óþarfi að hafa fleiri orð um þetta. Mín ósk er sú að hæstv. forseti láti álit sitt í ljós á því sem hérna hefur gerst því þetta gæti vissulega skapað fordæmi og í öðru lagi hvort það sé rétt, eins og ætla má samkvæmt skýrslunni sem fyrir liggur, að forseti hafi framsent erindið án þess að hafa samband við skýrslubeiðendur.