Ólafur G. Einarsson:
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í þessi skoðanaskipti, en það var annað atriði sem kom mér upp í ræðustólinn. Hv. 1. þm. Reykv. sagði áðan að forseti sameinaðs Alþingis væri æðsti yfirmaður Ríkisendurskoðunar. Mig langar bara til þess að vita hvort það er skoðun hæstv. forseta að svo sé og ef svo er hvar það standi í lögum.