Skýrsla um Sigló hf.
Föstudaginn 19. maí 1989

     Kristinn Pétursson:
    Hæstv. forseti. Ég ætla að leyfa mér í umræðum um þingsköp og Ríkisendurskoðun að koma því á framfæri að ég þakka Ríkisendurskoðun þær skýrslur sem hafa komið í vetur. Það vill gjarnan vera svo að sínum augum lítur hver á silfrið eins og þar stendur, en það er ánægjulegt að það skuli vera aðhald. Það þurfa allir að vera undir aðhaldi.
    Það er ein skýrsla frá Ríkisendurskoðun um framkvæmd fjárlaga 1988. Ég ætla að leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta. ( Forseti: Ég bið hv. þm. að misnota ekki leyfi til umræðu um þingsköp með því að lesa langan texta.) ,,Útgreiðslur umfram fjárlög nr. 10/1988 hjá A-hluta ríkissjóðs námu á árinu 1988 8 milljörðum 56 millj. kr.`` Hæstv. forseti. Þetta er alvarlegt mál. 41. gr. stjórnarskrárinnar hljóðar svo: ,,Ekkert gjald má reiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum``.
    Ég tel að þessi vinnubrögð séu ekki í samræmi við stjórnarskrá landsins. Ég hef nokkrum sinnum haft orð á þessu í vetur og ég hefði gjarnan viljað heyra álit hæstv. forseta Sþ. og forsrh. hvort þeir telji þetta vera ranga túlkun hjá mér. ( SighB: Þú verður að spyrja Ólaf Þórðarson.) Hv. formaður fjvn. mætti gjarnan svara spurningunni líka. Ég tel að samkvæmt þessum texta þurfi Alþingi að leita heimilda fyrir fram um útgjöld af hendi ríkisins því að annars er framkvæmdarvaldið hreinlega á ,,fittinu`` eins og hæstv. forsrh. var að tala um í fyrrahaust. Þá vissi hann ekki hvað það var, en það var útskýrt fyrir honum þá þannig að hann veit núna hvað það er. ( RA: Er þetta mál á dagskrá?) Þetta er umræða um skýrslu Ríkisendurskoðunar og þingsköp og ef stjórnarskrá landsins má ekki ræða undir þingsköpum væri gaman að fá túlkun á því.
    Ég hefði gjarnan viljað heyra álit forsrh. og hæstv. forseta á því hvort það er ekki rétt að frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1988 verði lagt fyrir haustþing. Það er orðið of seint núna því þingið er að verða búið, en það ætti að leggja frv. til fjáraukalaga fram í haust.
    Menn geta farið að spyrja: Hver er það sem kveikir verðbólguna? Hvernig stendur á þessari verðbólgu? ( Forseti: Forseti hlýtur að biðja hv. þm. að halda sig hér við umræðu um þingsköp.) Ég tel mig vera að gera það, hæstv. forseti. Ég er hættur í bili.