Manneldis-og neyslustefna
Föstudaginn 19. maí 1989

     Þorv. Garðar Kristjánsson:
    Hæstv. forseti. Mér þótti rétt að vekja athygli á þessu atriði sem ég gerði. Ég hygg að það sé nokkur ágreiningur um hvernig eigi að túlka ákvæði þingskapa um þetta efni. Ég geri ekki athugasemd við úrskurð hæstv. forseta, en tel hins vegar rétt að úrskurður hafi verið gefinn um þetta efni.