Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Það er aðeins vegna þeirrar umræðu sem fór fram áðan um þingsköp varðandi atkvæðagreiðslu að ég held að það sé betra að menn gangi af þessum fundi með sæmilega skýra mynd af því sem stendur í þingsköpum um þetta efni. Í 45 gr. þingskapanna segir svo, ég leyfi mér að vitna í hana: ,,Engin ályktun er lögmæt nema meira en helmingur fundarmanna þeirra sem atkvæðisbærir eru greiði atkvæði með henni.`` Í sömu grein segir í upphafi að eigi má gera neina ályktun nema meira en helmingur þingmanna í sameinuðu þingi eða viðkomandi deild sé á fundi og greiði þar atkvæði, 32 hið fæsta, sem þurfa að taka þátt í atkvæðagreiðslu hvort sem það er með já, nei eða því að sitja hjá.
Þetta þýðir að minnst 17 þurfa að greiða atkvæði með till. til að hún sé ályktun Alþingis, þ.e. röskur fjórðungur þingmanna þarf að hafa greitt já með till. til þess að hún sé samþykkt sem ályktun. Þannig skil ég þessa grein. Mér sýnist það vera ótvírætt og mun betri svipur á því en ef það gæti gerst eins og nefnt var hér að ályktun hlyti afgreiðslu Alþingis með aðeins einu atkvæði.