Ályktunarfær þingfundur
Föstudaginn 19. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti skal láta athuga þetta mál nánar. En eitt veit forseti, að sé þessu nákvæmlega framfylgt hefur margsinnis verið fram hjá því farið. Nægir að minna á að hér hafa fjárlög verið afgreidd með 30 atkvæðum. Það væri fróðlegt að taka saman hvort þeirri reglu sem hv. 2. þm. Austurl. hefur bent á hér sé alltaf nákvæmlega framfylgt og verður það kannað.
    Umræðum um þingsköp og atkvæðagreiðslur er lokið og aftur verður gengið til dagskrár. Forseti mun freista þess að ljúka afgreiðslu á skýrslu forsrh. um Byggðastofnun. Forseti vill mælast til góðs samstarfs. Á mælendaskrá eru aðeins tveir hv. ræðumenn. Forseti vill upplýsa að verði sú umræða sýnilega löng eða taki einhvern tíma mun forseti fresta henni til þess að taka á dagskrá vegáætlun. En í von um góða samvinnu hv. þm. á væntanlega síðasta kvöldi þessa löggjafarþings ætla ég að freista þess að ljúka þessari umræðu.