Forseti (Valgerður Sverrisdóttir):
Þannig háttar til að þrír hv. þm. eru nú á mælendaskrá um þetta dagskrármál, en því verður nú frestað þar sem leita þarf afbrigða vegna 1. dagskrármáls, vegáætlunar. Þannig háttar til að þingmenn eru sumir að hverfa úr húsi og því telur forseti ekki óhætt að bíða lengur með að leita afbrigða vegna vegáætlunar.