Skúli Alexandersson:
Hæstv. forseti. Ég tel að forseti hafi lýst því yfir að Alþingi verði ekki starfhæft þegar nokkuð líður á nóttina. Ég er alveg tilbúinn að flytja brtt. við það mál sem hér á að fara að ræða um og ég tel alveg ástæðulaust að búa þannig um hlutina að menn geti í miðri umræðu um Byggðastofnun tekið sig til og farið út úr húsinu og gert þingfund óstarfhæfan. Ef þetta er á þann veg að forseti geri sér grein fyrir því að þingfundur verður ekki starfhæfur, ekki atkvæðisbær er fram líður á nóttina og fram líður á umræðuna um vegáætlun liggur beint fyrir að það á að fresta þessum fundi og það fram á mánudag.