Framvinda þingfundar
Föstudaginn 19. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Þessum fundi verður ekki frestað. Tekist hefur samkomulag milli þingflokkanna um hvernig þessari umræðu skuli háttað og ég teldi það brot á því samkomulagi ef út af því yrði brugðið. Ég vil minna menn á að það flýtir ekki afgreiðslu, hvorki umræðna um Byggðastofnun né vegáætlun, ef menn halda uppi umræðu um þingsköp mjög lengi.