Vegáætlun 1989-1992
Föstudaginn 19. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Nú er forseti í verulegum vanda. Það er ljóst að umræða um vegáætlun verður að hefjast sem allra fyrst. Umræðu um skýrslu forsrh. um Byggðastofnun er ekki lokið og enn eru þrír hv. þm. á mælendaskrá. Ég spyr hv. þm. hvort þeir leyfi ekki forseta að hefja umræðu um vegáætlun og verði því ekki mótmælt mun forseti hefja hana nú. ( EgJ: Ég vil flytja mína ræðu.) Hv. 4. þm. Austurl. hefur óskað eftir að ljúka ræðu sinni í hinu fyrra máli og verður að sjálfsögðu orðið við því.