Frsm. minni hl. fjvn. (Pálmi Jónsson):
Virðulegi forseti. Tveir hv. þm. hafa gert að umtalsefni það sem segir í áliti minni hl. um þjóðbrautir. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Við lítum svo á að nauðsynlegt sé að hefja þegar endurskoðun langtímaáætlunar og leggjum áherslu á að þegar langtímaáætlun lýkur 1994 verði lagt aukið fé í þjóðbrautir sem legið hafa eftir meðan aðaláherslan hefur verið lögð á stofnbrautir.``
Þetta fannst hv. þm. Skúla Alexanderssyni ekki stórmannlega mælt eða ekki mikil reisn yfir þessum orðum og hv. 2. þm. Vestf. Ólafur Þ. Þórðarson túlkaði þetta á þá leið að við vildum að menn færu ekki að snúa sér að þjóðbrautum fyrr en stofnbrautirnar væru búnar. Þetta er vitaskuld hártogun og útúrsnúningur. Allir vita og ábyggilega þessir tveir hv. þm. að á langtímaáætlunartímabilinu hefur verið lögð meiri áhersla á stofnbrautir en þjóðbrautir. Ef þeirri áætlun væri fylgt til loka heldur sú áhersla áfram á stofnbrautirnar umfram þjóðbrautir allt til loka tímabilsins. Ég hef ekki gert tillögur um að þessum áherslum verði breytt. En þetta þýðir það, eins og ég hef komist að orði, að þjóðbrautirnar hafa nokkuð legið eftir. Allir kjósum við að fá möguleika á að fá meira fé í vegina eins og hv. þm. Skúli Alexandersson, en ef við gerum ráð fyrir því að þeirri stefnu sem mörkuð var í langtímaáætlun verði fylgt með þessar áherslur mun fylgja að meiri þungi verður á framkvæmdum í stofnbrautum til enda þess tímabils en þjóðbrautum.
Tímabilinu lýkur 1994 en ekki eftir 15 eða 20 ár eins og skilja mátti á hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni og ég tel að eftir að fólk sem býr við þjóðbrautirnar hefur sætt sig við að þær hafa legið eftir svo langan tíma verði eigi hjá því komist að rétta hlut þeirra þátta vegakerfisins þegar þessu tímabili lýkur.
Ég tek sannarlega undir það með hv. þm. Skúla Alexanderssyni að við þurfum að fá meira fé og ef við fáum miklu meira fé, eins og hann taldi allar horfur á og yfirvofandi, er auðvitað hægt að gera betur við báða þessa vegaflokka. Við skulum sannarlega vona að svo verði. En ég vil gjarnan segja við hv. þm. Skúla Alexandersson að hann skuli neyta meðan á nefinu stendur, meðan hann er aðili að ríkisstjórn, meðan hann er stuðningsmaður núv. hæstv. ríkisstjórnar og meðan hæstv. samgrh. er flokksbróðir þessa hv. þm. Það var dálítið einkennilegt að hlusta á að það væru tímamót og gleðileg stefnumarkandi skil í þessum málum að ekki skyldi eiga að skerða sérmerkta tekjustofna Vegagerðar ríkisins á seinni hluta þessa áætlunartímabils. En það eru aðaltímamótin í því fólgin að á þessu ári eru einmitt teknar 682 millj. kr. af Vegasjóði beint í ríkissjóð. Það er sjálfsagt núv. hæstv. samgrh. og núv. hæstv. ríkisstjórn til lofs.
Ég vona að hv. þm. Skúli Alexandersson, sá mæti maður og áhugamaður um vegagerð, sem ég tók eftir að þakkaði hæstv. samgrh. fyrir margt í sinni ræðu, fái sannarlega tilefni til þess að þakka honum þá fyrir eitthvað sem er þakkarvert en ekki að þakka honum
fyrir að hafa skorið niður þessa áætlun á þessu ári.
Við erum ekki í vandræðum með að verja þeim peningum sem kunna að fást til vegagerðar í framkvæmdir. Við eigum svo mikið verk óunnið, bæði í stofnbrautum og í þjóðbrautum. En í þessu nál. er ekkert ofsagt um hver þarna er þörfin og það þarf engar hártoganir eða útúrsnúninga og reyna að gefa eitthvað annað í skyn, að við viljum ekki láta gera neitt í þjóðbrautum fyrr en eftir árið 1992 eða kannski eftir aldamót. Það er útúrsnúningur og rangfærsla.
Ég held að það sé kannski ekki margt fleira um ræður þessara hv. þm. að segja sem eru, eins og ég hef getið um, miklir áhugamenn um vegagerð og ábyggilega af heilum hug bera þennan málaflokk fyrir brjósti. En það er ekki slíkum mönnum sæmandi að snúa út úr því sem sett er fram eða snúa út úr því sem ég sagði í minni ræðu.
Hv. formaður fjvn. Sighvatur Björgvinsson taldi mig hafa farið með rangt nál og sagt ósatt varðandi vinnubrögð fjvn. Ég lýsti vinnubrögðum fjvn. þegar í nál. minni hl. og nefndi fundi með dagsetningum og í grófum dráttum hvað þar hefði farið fram. Á fundum 10.--18. apríl var dreift gögnum eins og hér segir: Margs konar frumgögnum af hálfu Vegagerðar ríkisins, þar á meðal tillögum Vegagerðar ríkisins um skiptingu milli kjördæma, skiptitölum á milli kjördæma og margs konar upplýsingum og tillögum sem er þakkarvert og sem stendur ekki á hjá þeim ágætu mönnum sem þar standa að verki. En um þessi mál voru ekki teknar neinar ákvarðanir. Það voru heldur ekki teknar neinar ákvarðanir um þessi mál, hvorki um skiptitölur á milli kjördæma né um hvort þeir framkvæmdaflokkar sem eru í tillögunni sjálfri skyldu standa þannig óbreyttir eða ekki. Ég þekki það í vinnu um þessi mál um fjölda ára að það er iðulega a.m.k. rætt innan fjvn. hvort hreyfa skuli til á milli framkvæmdaflokka frá því sem tillagan greinir þegar hún kemur fram. Það eru eftir því sem ég man til einnig umræður um hvort skuli fallist á þær tillögur sem Vegagerðin setur fram um skiptingu á milli kjördæma eða ekki. Ég veit vitaskuld ekkert um það hvað meiri hl. fjvn. ræðir á sínum fundum. En þetta var kynnt sem tillögur án þess að nokkur ákvörðun væri tekin um það fyrr en segja mætti í fyrradag og í
gær. Þá voru fyrst teknar ákvarðanir sem líta mátti á sem afgreiðslu, að það skyldi standa sem tillögur Vegagerðarinnar greindu. Að halda því fram að ég segi ósatt um þessi efni er út í bláinn.
Hafi það verið svo að meiri hlutinn á fundum sínum í heilan mánuð hafi t.d. ekkert rætt um hvort það skyldi nota þessar skiptitölur eða eitthvað annað, þá kemur mér það sannarlega á óvart. Ég veit a.m.k. ekkert hvað fram fer á þeim fundum. En slíkar bollaleggingar og umræður voru ekki á fundum nefndarinnar í heild og engin tillaga kom fram um það frá formanni nefndarinnar að þetta skyldi afgreitt, þrátt fyrir það að ég fyndi að því allsterklega þegar þetta mál var ekki á dagskrá í fjvn. að það skyldu ekki fara fram afgreiðslur á einstökum þáttum
áætlunarinnar áður en farið væri í skiptingu innan hvers kjördæmis. Það eru þau vinnubrögð sem ég hef vanist og það eru þau vinnubrögð sem á að nota en ekki hafa hlutina í lausu lofti og haga því svo til, eins og hv. formaður fjvn. orðaði það við mig í þeim orðaskiptum, að hann vildi afgreiða þetta í einu slengi í lok þeirrar vinnu sem nefndin þyrfti að leggja í. Það er ekki vinnulag að mínu skapi. Hann getur sagt hér að ég fari með ósannindi ef honum þóknast það. En það er ekkert rangt í því sem ég sagði.
Hugmyndir og tillögur af hálfu embættismanna eru ekki hið sama og ákvarðanir fjvn. Hugmyndir og tillögur embættismanna eru venjulega góðar, ekki síst frá starfsmönnum Vegagerðar ríkisins, en það er venja af pólitískri nefnd eins og fjvn. er að þær tillögur séu ræddar og kafað eftir því hvort menn hafi þar fleiri hugmyndir eða vilji gera tillögur um breytingar og taki þá ákvörðun um að láta tillögurnar standa. Sú ákvörðun var ekki tekin á réttum tíma og umræður um þessi mál voru af eins skornum skammti og verða mátti. Fundirnir fóru í að gefnar voru upplýsingar og út í þær upplýsingar spurt. Þegar fundir eru ekki fleiri í nefndinni í heild en þrír sem eru fyrst og fremst upplýsingafundir, fjórði fundurinn, sem er stuttur fundur, 6. maí þar sem áfangatillögur koma fram frá meiri hl. um tekjuhliðina og svo tveir hálftímafundir í fyrradag og einn fundur í gær, þá er ekki von að umræður séu ákaflega miklar um öll þessi mál. Ég vísa því þess vegna alveg til föðurhúsa, sem hv. formaður Sighvatur Björgvinsson segir, að ég hafi sagt ósatt.
Ég vitnaði til ræðu hv. þm. Geirs Gunnarssonar. Ég gerði það til að sýna fram á að í annan tíma hefðu verið óeðlileg vinnubrögð innan fjvn. Ég jafnaði því ekki nákvæmlega saman, enda þurfti þess ekki með ( SighB: Jú, það gerðir þú, Pálmi Jónsson.) enda aðstæður þá kannski eitthvað öðruvísi. ( SighB: Segir þingmaðurinn frá þessu?) Við skulum þá láta það koma í ljós. Þær aðstæður voru kannski ekki nákvæmlega þær sömu, en ég rakti ræðu hv. þm. Geirs Gunnarssonar til þess að sýna fram á að í annan tíma hefur það gerst að meiri hl. fjvn. í meðferð vegamála hefur haldið málunum hjá sér tímum saman, í bæði skiptin í mánuð. Ég segi mánuð í þetta skiptið þrátt fyrir að einn fundur væri haldinn til þess að leggja fram nokkrar viðbótar- og áfangatillögur. Svipmótið var líkt og síðan var tillögunum dreift í einu slengi, svo að notað sé orðalag hv. þm. Sighvats Björgvinssonar, á tveimur hálftíma fundum í fyrradag og síðan aftur á fundi í gær. Þetta vinnulag var líkt.
Mér er vitaskuld um það kunnugt vegna þess að það kom fram hér við fyrri umræðu að ágreiningur var í stjórnarliðinu um þetta mál og meðal þeirra fulltrúa stjórnarliðsins sem sæti eiga í fjvn. Ég segi það alveg fullum fetum að slíkur ágreiningur á ekki að hindra að nefndin í heild vinni að þessu máli. Það er vitaskuld mál ríkisstjórnarmeirihlutans hversu stór sú fjárhæð verður sem skipt er. Það er pólitískt atriði. Öll önnur mál sem þetta varða er mál nefndarinnar í heild og á að vinnast í nefndinni í heild, á að vera í
umræðu í nefndinni í heild en ekki í lokuðum hópi meiri hlutans. En það er það sem gerst hefur nú ef hv. formanni nefndarinnar hefur þá þóknast að ræða það í meiri hlutanum sem ég veit auðvitað ekkert um. Kannski hefur hann haldið því einungis hjá sjálfum sér allan þennan tíma. En það var ekki rætt með þeim hætti sem eðlilegt er í nefndinni í heild.
Hv. formaður nefndarinnar getur verið ánægður með sín vinnubrögð fyrir mér. Ég er það ekki, hvort sem hann ber á mig hér í þessum ræðustól ósannindi eða ekki. Þessi vinnubrögð eru ekki til eftirbreytni og ættu ekki að verða fordæmi fyrir fjvn. á komandi tímum. Ég held þeirri skoðun minni alveg hiklaust fram og spyr hann ekki leyfis um það.
Með þessum orðum mínum er ég síður en svo að segja nokkuð það sem væri til þess að kasta rýrð á störf starfsmanna Vegagerðar ríkisins. Þó ég hafi tekið það fram fyrr vil ég gjarnan taka fram enn að Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri og hans menn, og sá sem næstur honum er í þeirri stofnun, Helgi Hallgrímsson, sem hér er viðstaddur í hliðarsal, eru meðal allra öruggustu, liprustu og skýrustu starfsmanna í stofnunum ríkisins og sýna mikla alúð við að leggja fram gögn og gera tillögur í málum eins og þessum þegar fjvn. er að starfi. Það vil ég gjarnan þakka. Og þeir starfsmenn eru ábyggilega ekki til þess að spilla því að hægt væri að fjalla um þessi mál með eðlilegum og venjubundum hætti innan fjvn. í heild.
Ég skal svo ekki, hæstv. forseti, lengja þetta mál mitt, en aðeins ítreka að ég sendi það til baka sem að mér var kastað af hálfu hv. formanns fjvn.