Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegi forseti. Ég skal reyna að lengja ekki mikið þá umræðu sem hér hefur staðið allnokkra hríð, en mér þykir þó við hæfi þegar komið er væntanlega að lokum afgreiðslu vegáætlunar að þessu sinni að segja nokkur orð og færa fram þakkir fjárveitinganefndarmönnum og þá ekki síst formanni fjvn. fyrir mikla vinnu sem endranær við að afgreiða vegáætlun.
Þá vil ég færa þakkir starfsmönnum Vegagerðar ríkisins, vegamálastjóra og starfsmönnum hans, bæði við undirbúning áætlunarinnar og eins veit ég að þeirra framlag við að vinna málið og koma því í endanlegan búning eins og það birtist í brtt. fjvn. hefur sem endranær verið mjög mikilvægt.
Þá vil ég færa þeim þakkir sem hér hafa tekið þátt í umræðunni og látið sig hafa það við fremur óvenjulegar aðstæður að ljúka þessari umræðu. Ég tek það fram að gjarnan hefði ég viljað að við hefðum getað rætt þetta mál við léttari aðstæður á öðrum tíma sólarhrings og haft jafnvel rýmri tíma til þess, en ég met þann skilning mikils sem í því birtist að menn fallast á þessa tilhögun til að greiða fyrir því að samkomulag um þinglausnir á þessu vori nái fram að ganga.
Ég vil taka fram að fyrir mitt leyti er sú efnislega niðurstaða sem liggur fyrir í brtt. frá fjvn. mjög ásættanleg miðað við þær forsendur sem við þurftum að byggja á eins og fjárlög höfðu verið afgreidd að þessu sinni og tjóar ekki og ástæðulaust að hafa um það mörg orð þó að mönnum hafi af skiljanlegum ástæðum orðið nokkuð tíðrætt um þá hluti.
Ég vil leyfa mér að segja að ég held að þessi vegáætlun muni þrátt fyrir allt marka nokkur tímamót og þá fyrst og fremst með þeirri ákvörðun að taka upp hinn svonefnda stórverkefnaflok. Ég er þeirrar skoðunar og hef reyndar verið um hríð að það sé orðið tímabært og reyndar óhjákvæmilegt að ráðast í þau verkefni sem þar eru á ferðinni. Ég á þar bæði við t.d. höfuðborgarsvæðið og framkvæmdir þar og einnig jarðgöngin. Ég leyfi mér að segja vegna þess að hér voru fyrr í kvöld rædd byggðamál að hér sé á ferðinni stórt byggðamál og tímamótabyggðamál og gangi þær áætlanir eftir sem þar eru markaðar eða boðaðar í þessari vegáætlun mun það skipta sköpum fyrir allar aðstæður heilla landsfjórðunga.
Ég vil nefna þar Vestfjarðasvæðið sérstaklega. Ég hygg að því verði varla móti mælt að þar eigi í hlut sá landshluti sem hvað verst hefur farið út úr óhagstæðri byggðaþróun ekki bara síðustu ára heldur áratuga, en þær framkvæmdir sem hér eru boðaðar með brú yfir Dýrafjörð og jarðgöngum undir Breiðadals- og Botnsheiði munu gerbreyta öllum aðstæðum, öllum skilyrðum til samfélaganna á norðanverðum Vestfjörðum þannig að fáu sem á síðari áratugum hefur gerst á því svæði verður til jafnað leyfi ég mér að segja. Þess vegna held ég að það sé með fullum rétti hægt að halda því fram að þar séu veruleg tímamót á ferðinni, a.m.k. hvað þetta snertir.
Ég vil taka undir þau sjónarmið sem hér hafa komið fram, og hef reyndar þegar lýst yfir, bæði fyrr í vetur og í framsögu fyrir þessari vegáætlun, að það er orðið tímabært og nauðsynlegt að endurskoða langtímaáætlun og ég vil leggja því lið og beita mér fyrir því að það verk hefjist á þessu ári og helst sem fyrst og óska eftir sem nánustu og mestu samstarfi við hv. Alþingi og fjvn. í því verkefni.
Varðandi þá vegáætlun sem er til afgreiðslu, hvort hún sé niðurskurðaráætlun eða ekki, ætla ég ekki að fara mörgum orðum, en ég vil þó halda því til haga sem sannanlegt er að framkvæmdir á þessu ári verða samkvæmt þeirri brtt. sem hér er nú rætt um á verðlagi áætlunarinnar upp á 3533 millj. kr. hið minnsta, en það háttar svo skemmtilega til að séu framkvæmdir sl. árs, upp á um 2900 millj. kr. á verðlagi þess árs, framreiknaðar til verðlags áætlunarinnar er nokkurn veginn nákvæmlega um sömu krónutölu að ræða, þ.e. 3530--3540 millj. kr. Það þýðir jafnframt, vegna þess að svo illa tekst til því miður væntanlega á þessu ári að þjóðartekjur dragast nokkuð saman, að hlutfallið hækkar heldur ef eitthvað er. Þess vegna er í raun ekki hægt að halda því fram að verði verðáætlun samþykkt eins og hér liggur brtt. fyrir um sé þar um niðurskurð eða samdrátt að ræða. Ef eitthvað er verður heldur aukning, a.m.k. á þessu hlutfalli. Þá er það upp á um 1,18% af vergum þjóðartekjum miðað við hinn nýja grunn og það er talsverð aukning a.m.k. frá því ári sem lakast hefur orðið á síðustu árum í þessum efnum eða árinu 1987 þegar hlutfallið fór miðað við sama mælikvarða niður í 1,07. Strax á næsta ári er gert ráð fyrir að þetta hlutfall hækki í 1,45 og haldist þannig út gildistíma þeirrar fjögurra ára áætlunar sem hér er fjallað um þannig að því verður varla haldið fram með fullnægjandi rökum að mínu mati að hér sé á ferðinni niðurskurðarplagg. Ég tel að hið rétta sé að framkvæmdir séu nokkurn veginn sambærilegar miðað við síðasta ár á þessu ári sem nú er að líða og aukist síðan á hinum næstu. Það er svo hins vegar annað mál og undir það get ég svo sannarlega tekið að þær mættu vera meiri og það held ég að sé í sjálfu sér engin deila um, en byr verður víst að ráða hversu ólmur sem kóngur er í að sigla í þessu tilviki eins og endranær.
Hér var ýmislegt vel sagt í þeim ræðum sem fluttar voru. Mig langar
sérstaklega að nefna það sem hv. 7. þm. Norðurl. e. nefndi um orkumál og þróun þeirra hluta. Þar var flutt athyglisverð ræða að mínu mati um hluti sem við þurfum svo sannarlega að hyggja að og réttilega líka á það bent að það þarf að horfa til framtíðar. Það er einmitt það sem við erum að reyna að gera í samgrn. um þessar mundir, m.a. með því að hrinda af stað starfi sem við köllum samgöngur og fjarskipti á nýrri öld og á að undirbúa samgönguáætlun fyrir árið 2000 og framhaldið, skoða m.a. þróun hluta af því tagi sem hv. 7. þm. Norðurl. e. vék að um orkuna og tækniframfarir og annað slíkt sem að sjálfsögðu er nauðsynlegt að hafa í huga þegar framtíðin er skoðuð
í þessum efnum.
Hv. þm. Alexander Stefánsson, Skúli Alexandersson og Óli Þ. Guðbjartsson komu einnig að ýmsu sem ástæða hefði verið til að nefna. Ég vil þar eingöngu nefna það sem hv. þm. Skúli Alexandersson vék að um Hvalfjarðargöng, vísa þar til svars sem ég hef nýlega gefið um fsp. um það efni og endurtaka að það mál verður nú skoðað og þær hugmyndir sem eru uppi um að hrinda þeim framkvæmdum af stað með e.t.v. nokkuð nýstárlegum hætti miðað við það sem áður hefur tíðkast um sambærilega mannvirkjagerð hér.
Þá er ég kominn að hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni sem spurði mig þeirrar frómu spurningar hvort ekki væri tímabært að velta því fyrir sér hvort Vegagerð ríkisins ætti fremur að vera B-hluta stofnun en A vegna þess að ýmislegt í verkefnum hennar kynni að breytast eða þurfi að breytast á næstu árum. Það var út af fyrir sig góð spurning og væri fróðleg umræða að fara í gegnum þá hluti, en varla tímans vegna rétt að fara langt út í hana að sinni. Ég skal reyna að mæta betur nestaður rökum í þá umræðu að hausti eins og hv. þm. bauð reyndar upp á. En ég vil segja það eitt að varðandi þá hugmynd að fara út á braut lántaka og e.t.v. gjaldtöku fyrir afnot af samgöngumannvirkjum sem í raun felst kannski að hluta til í þessari hugmynd ... (Gripið fram í.) Jú, en það mundi væntanlega styttast í að ýmsir færu þá að gera um það kröfur að sérstaklega yrði aflað tekna með gjaldtöku af afnotum fyrir viðkomandi mannvirki sem lán væru tekin til hverju sinni. Þar vil ég lýsa því yfir sem minni afstöðu, og vil ekki að neinn misskilningur sé uppi um það á meðan ég fer með ráðuneyti samgöngumála, að ég tel að menn þurfi að fara mjög varlega út á þá braut ef haldið verður út á hana á annað borð. Meginrök mín í því efni eru að ég tel það vera okkar gæfu, Íslendinga, í þessu máli að við höfum litið á samgöngumannvirki þjóðarinnar sem sameiginlega eign hennar allrar og við höfum ekki farið út á þá braut, sem ýmsar aðrar þjóðir hafa gert, að láta notendur einstakra samgöngumannvirkja greiða fyrir þau sérstaklega. Ég held að við verðum einmitt í okkar strjálbýla og stóra landi að fara mjög varlega af þeim ástæðum að það yrði einfaldlega ofviða ýmsum þeim byggðarlögum og jafnvel landshlutum sem ættu þó ein með afnotagjöldum að greiða fyrir fjárfestingar á þessu sviði ef farið yrði langt út á þá braut. Þar með er ég ekki að segja að arðbærar fjárfestingar innan samgöngumálanna geti ekki borið lántökur ef því er að skipta og að sjálfsögðu hafa menn farið út í það í einstökum verkefnum með tímabundnum hætti a.m.k. að flýta framkvæmdum þegar það er augljóslega hagkvæmt og ég er ekki að segja það með þessum orðum að það geti ekki komið til greina, en hvað grundvallarbreytingar af því tagi sem ýmsar aðrar þjóðir hafa ýst út á snertir tel ég, og vil undirstrika það, fulla ástæðu til að skoða okkur vel um í þeim efnum vegna okkar sérstöku aðstæðna.
Svo vil ég að lokum ítreka þakkir mínar til hv. fjvn., starfsmanna Vegagerðarinnar og þeirra sem hér
hafa tekið þátt í umræðum og lagt gott til mála fyrir þeirra framlag og ég vona að það megi takast að standa þannig að framkvæmd þessarar vegáætlunar þann gildistíma sem hún tekur yfir að framkvæmdir verði ekki minni en hér eru boðaðar, ef eitthvað er meiri. Og ég vil lýsa því yfir að það stendur ekkert annað til af hálfu þess samgrh. sem hér talar en að láta standa við þessa áætlun að fullu og öllu leyti að svo miklu leyti sem það verður í mínu mannlega valdi.