Ráðstafanir vegna kjarasamninga
Laugardaginn 20. maí 1989

     Þorv. Garðar Kristjánsson:
    Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. sagði að það væri við hæfi nú undir þinglausnir að koma að þessum málum málanna, sjávarútvegsmálunum og ástandi þeirra í dag. Okkur kemur að ég ætla öllum saman um það í aðalatriðum hvernig ástandið er. Menn deila ekki um að það vanti rekstrargrundvöll undir fiskvinnsluna. Ég held að menn deili ekki um það. En það er eins og sumir telji að það sé bætt úr því með Atvinnutryggingarsjóðnum og hlutafjársjóðnum. En við höfum þaulrætt þau mál hér við mörg tækifæri í hv. deild og ég þarf ekki að endurtaka það sem bæði ég og aðrir hafa sagt í því efni að hlutafjársjóðurinn og Atvinnutryggingarsjóðurinn eru hjóm eitt og ekkert annað en sýndarmennska nema sé skapaður rekstrargrundvöllur fyrir fyrirtækin. Og fram hjá þessu verður ekki komist.
    Auðvitað er langur aðdragandi að því ástandi sem nú er komið. En menn hafa þó á hverjum tíma séð hættuna og viljað sporna við þróuninni í ýmsum efnum. Það var athyglisvert að hv. 4. þm. Vesturl. tók fram í sinni fyrri ræðu að fyrri ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, þ.e. ríkisstjórn Sjálfstfl. og Framsfl., hefði gert ýmislegt vel í þessu efni. En hv. 4. þm. Vesturl. gaf ekki núv. ríkisstjórn slíka einkunn. Hv. 4. þm. Vesturl. hefur gefið þá lýsingu á ráðleysi og ábyrgðarleysi núv. ríkisstjórnar í þessum efnum að það verður ekki komist lengra í því efni og ég reyni það ekki. En ég tek fram að ég er sammála hv. þm. í lýsingu hans á núv. ríkisstjórn og þeirri stjórnarstefnu sem nú gildir.
    Nú var það svo að á síðasta sumri þegar stjórnarskiptin urðu að öllum, ég ætla að það sé hægt að segja það, þáv. stjórnarflokkum kom saman um að það væri aðgerða þörf, ástandið væri þannig. Ég ætla engum flokki annað, enda kom það skýrt fram. En það skeði ekkert þá vegna þess að flokkarnir deildu um hvernig skyldi við brugðist. Upp úr því kemur núv. ríkisstjórn. En eftir að núv. ríkisstjórn tekur við völdum skeður ekkert raunhæft í þessu fram á þennan dag. Hv. 4. þm. Vesturl. hefur gert skilmerkilega grein fyrir þessu. Nú vil ég spyrja hv. þm.: Getur hann gefið skýringu á því hvernig stendur á því að þegar hans flokkur, Alþb., kemur inn í ríkisstjórn bregður svo við að ekkert skeður í þessum efnum, það er ekki viðleitni og ekki einu sinni það sem að hans áliti hafði borið vott um raunhæfar aðgerðir í tíð fyrri ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar? Getur hv. þm. skýrt þetta?