Málefni aldraðra
Laugardaginn 20. maí 1989

     Frsm. heilbr.- og trn. (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég veit ekki hvort ég get kallað mig frsm., nefndin hefur ekki komið saman fyrir þessa umræðu, en ég ætla hér, með leyfi forseta, að gera í örstuttu máli grein fyrir þeim breytingum sem gerðar voru á frv. í hv. Nd.
    Þá eru það í fyrsta lagi brtt. á þskj. 1251 sem heilbr.- og trn. Nd. flytur sameiginlega. Þær breytingar eru fyrst og fremst orðalagsbreytingar og minni háttar lagfæringar. Á þskj. 1250 var breyting gerð á 10. gr. frv. og sú brtt. var flutt af meiri hl. heilbr.- og trn. Þar er um að ræða lagfæringu á orðalagi vegna svokallaðs nefskatts og sú brtt. var samin af ríkisskattstjóra. Það er ekki hægt að tala um það sem efnisbreytingu heldur orðalagsbreytingu. Í þriðja lagi er brtt. á þskj. 1320 og hún er í nokkrum töluliðum. 1. og 2. töluliður fela það í sér að fallið er frá innheimtu nefskattsins í Framkvæmdasjóð aldraðra á árinu 1989 og taka ákvæði um innheimtu gildi um nk. áramót eins og önnur ákvæði frv. 3. liðurinn er ákvæði til bráðabirgða og fjallar um að tryggja sjóðnum sömu tekjur og verið hefði með nefskattinum ef hann hefði tekið gildi strax eins og gert var ráð fyrir í frv. eins og það var lagt fram.
    Þessar brtt., sem ég hef nú gert grein fyrir, voru sem sagt allar samþykktar í hv. Nd. og frv. er þannig breytt komið til okkar nú til einnar umræðu.
    Ég vil að síðustu þakka samnefndarmönnum mínum í heilbr.- og trn. kærlega fyrir mjög gott samstarf og mjög málefnalega umræðu á fundum þar sem þetta mun nú vera síðasta málið sem afgreitt er frá þeirri nefnd á þessu starfsári.